Notar ekki öpp og þykir fátt betra en breskir sakamálaþættir 30. september 2017 11:00 Helga Þórisdóttir hefur gegnt starfi forstjóra Persónuverndar frá árinu 2015 en fyrirséð er að starfsemi stofnunarinnar taki miklum stakkaskiptum á komandi misserum. fréttablaðið/eyþór
Helga Þórisdóttir hefur gegnt starfi forstjóra Persónuverndar frá árinu 2015 en fyrirséð er að starfsemi stofnunarinnar taki miklum stakkaskiptum á komandi misserum. Á næsta ári er áætlað að innleiða í íslenskan rétt umfangsmiklar breytingar á persónuverndarlöggjöfinni sem á eftir að hafa veruleg áhrif á öll þau fyrirtæki sem vinna með persónuupplýsingar. Helga situr hér fyrir svörum í Svipmynd Markaðarins.Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári? Það er tvennt. Annars vegar að gögn séu nú talin verðmætari en olía og svo hitt að lesa um það í greininni „The Data That Turned the World Upside Down“, eftir Hannes Grassegger og Mikael Krogerus, hvernig samfélagsmiðlar hafa verið notaðir af utanaðkomandi aðilum til að greina persónuleika fólks og þannig orðið að leiksoppum þeirra sem hafa vald yfir gögnum og persónuupplýsingum, samanber niðurstöður forsetakosninganna í Bandaríkjunum og Brexit-kosninganna í Bretlandi.Hvaða app notarðu mest? Ef frá er talið Google Maps, þá nota ég ekki öpp. Ég lifi eftir þeirri leiðbeiningu að maður eigi að þekkja kerfin sem maður notar. Með uppgangi gervigreindar og notkun hennar á gríðargögnum (e. big data), þá hef ég ekki enn skilið til fulls hvernig persónuupplýsingar eru notaðar og rýndar í flestum þeim öppum sem boðið er upp á – og þess vegna nota ég þau ekki.Hvað gerir þú í frístundum þínum? Við erum fimm í fjölskyldunni – sex með öldruðum hundi – og best þykir mér nú að hafa fólkið mitt í kringum mig eða bjóða fjölskyldunni og góðum vinum í mat. Það verður að segjast eins og er að með þokkalega stórt heimili og meira en nóg að gera í vinnunni, þá eru frístundirnar fáar, en þegar þær gefast þá er líka fátt betra en breskir sakamálaþættir.Hvernig heldur þú þér í formi? Með því að fara seint og jafnvel ekki í hádegismat og gera upp húsnæði á milli þess sem hundurinn bjargar mér með hundagöngum. En svona án gríns, þá er hægt að fara ansi langt á bláberjaskyri og ristaðri brauðsneið auk þess sem góður taktur hefur alltaf fengið mig til að hreyfa mig.Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég er hrifin af nær allri tónlist frá sinfóníu til R&B – ef frá er talið þungarokk og rokk. Ég er alin upp með Abba og Boney M og get vel raulað með þeim enn þá. Þeir sem klikka aldrei eru George Michael, Paolo Conte, Carla Bruni – og ótrúlega margir nýir flottir íslenskir, og svo gamlir og góðir eins og Nýdönsk og Mezzoforte – þvílíkir afmælistónleikar um daginn.Ertu í þínu draumastarfi? Að starfa sem forstjóri Persónuverndar er mest krefjandi en að sama skapi áhugaverðasta viðfangsefnið sem ég hef tekist á hendur hingað til. Útgangspunkturinn hjá okkur er að standa vörð um mannréttindi og grundvallarréttindi einstaklinga þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga. Það er mjög auðvelt að láta það viðfangsefni fanga sig á tímum tæknibyltingar.Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira