Semja um 190 milljóna lóðarskuld kísilversins Haraldur Guðmundsson skrifar 23. júní 2017 07:00 Verksmiðja United Silicon stendur á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík. Fréttablaðið/Vilhelm
Reykjaneshöfn og eigandi lóðar United Silicon í Helguvík hafa samið um uppgjör á 190 milljóna króna lóðargreiðslu sem hafði verið í vanskilum síðan í nóvembermánuði árið 2015. Dráttarvextir nema þar af 30 milljónum króna en fimm ár eru liðin síðan lóðin var seld. „Þetta er ekki lengur í vanskilum og greiðslur hafa átt sér stað þó skuldin sé ekki greidd að fullu. Menn horfa björtum augum til framtíðar,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, sem undirritaði samkomulagið við lóðareigandann Geysi Capital ehf. um miðjan júní. Höfnin seldi lóðina árið 2012, á 362 milljónir króna, til Stakksbrautar 9 ehf. sem síðar rann inn í Sameinað sílikon hf. (United Silicon). Tveimur árum síðar eignaðist Geysir Capital, sem er í eigu hollenska félagsins USI Holding BV, lóðina, en þeir Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, og Auðun Helgason, lögmaður og stjórnarformaður Geysis og fyrrverandi stjórnarmaður kísilversins, hafa verið í forsvari fyrir félagið. Kaupverðinu var skipt í fjórar greiðslur og voru fyrstu tvær greiddar á settum tíma eða alls 200 milljónir króna. Þriðja greiðslan var upp á 100 milljónir, var á gjalddaga í nóvember 2015 og fór í innheimtu hjá lögfræðingi hafnarinnar nokkrum mánuðum síðar. Síðustu 62 milljónirnar átti svo að greiða í apríl í fyrra. Auðun sagði í ágúst 2016 að vanskilin mætti rekja til tafa á hafnarframkvæmdum Reykjaneshafnar, sem er í eigu Reykjanesbæjar, í Helguvík. Magnús hætti svo í stjórn verksmiðjunnar í apríl síðastliðnum en rekstur hennar hefur gengið illa allt frá gangsetningu í nóvember í fyrra og líkt og greint hefur verið frá verið plagaður af mengunaróhöppum. Samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið hefur undir höndum hófst vinna að samkomulaginu um síðustu greiðslurnar tvær rétt eftir áramót. Þar var samið við Geysi Capital en United Silicon hefur einnig viðurkennt greiðsluskyldu. Þá hefur blaðið heimildir fyrir því að ráðgert sé að Geysir renni svo síðar á árinu inn í rekstrarfélag kísilversins.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira