Frumkvæðið að bónusgreiðslum Klakka komið frá erlendum vogunarsjóði Daníel Freyr Birkisson skrifar 13. desember 2017 13:23 Nánast eina eign Klakka í dag er Lykill fjármögnun en félagið hefur verið sett í opið söluferli. Vísir/Stefán
Kaupaukagreiðslur eignarhaldsfélagsins Klakka koma frá erlendum hluthöfum félagsins. Ríflega 80 prósent hlutafjár félagsins er í eigu erlendra aðila, beint eða óbeint. Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins greindi í morgun frá því að stjórnendur Klakka hefðu samþykkt á mánudag kaupaukakerfi sem felur í sér bónuspott til stjórnenda félagsins upp á 550 milljónir króna vegna fyrirhugaðrar sölu á Lykli og vegna annarra eigna félagsins. Í tilkynningunni segir orðrétt:Það er skiljanlegt að stórar upphæðir eins og þær sem nefndar hafa verið sem mögulegar kaupaaukagreiðslur hjá Klakka vekji athygli og spurt sé hver taki ákvörðun um þær. Svarið við því er eigendur félagsins. Ríflega 80% hlutafjár Klakka er, beint og óbeint, í eigu erlendra aðila og er frumkvæðið að kaupaukagreiðslunum alfarið þeirra þó að stjórn hafi fjallað um útfærsluna og að beiðni þeirra lagt hana fyrir hluthafafund til samþykktar.Þá skal minnt á að þær upphæðir sem fram hafa komið í fjölmiðlum eru ekki endanlegar heldur eru það hámarksgreiðslur vegna heildareigna Klakka sem koma aðeins til ef mjög hátt verð fæst fyrir Lykil. Greiðslurnar geta orðið mun lægri eða jafnvel engar. Sérstök áhersla er á að kynna söluferli Lykils fyrir erlendum kaupendum og eigendur Klakka telja mikilvægt að allir sem að sölunni komi hafi beina fjárhagslega hagsmuni af því að sem allra hæst verð fáist fyrir félagið, eigendum þess til hagsbóta.Formanni VR misbýður greiðslurnarÍ kjölfar greinar Markaðarins hvatti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, til mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Klakka í Ármúla. Spyr hann hvort að fólk hafi áhuga á því að mæta fyrir utan húsið og þeyta bílflautum í mótmælaskyni.Sjá einnig: Boðar til mótmæla vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna KlakkaRagnar liggur ekki á skoðunum sínum vegna greiðslanna. „Að stjórnendur skuli voga sér að þiggja slíka bónusa er ekki bara grátlegt heldur algjörlega siðlaust. Þeim væri nær að skila þessum peningum til þeirra sem enn eiga um sárt að binda vegna þess skaða sem fyrirtækin ollu íslensku samfélagi. Að ofurlaunaðir stjórnendur skuli hugsanlega taka til sín allt að 60 milljónir hver í bónusgreiðslur er ekkert annað en viðbjóðslegt.“ Stærsti eigandi Klakka er vogunarsjóðurinn Davidson Kempner, í gegnum írska skúffufyrirtækið Burlington Loan Management, en samanlagt á sjóðurinn um 75 prósenta hlut í félaginu. Vogunarsjóðurinn, sem var einn stærsti kröfuhafi föllnu viðskiptabankanna, bætti verulega við eignarhlut sinn í félaginu í fyrra þegar hann keypti samanlagt rúmlega 60 prósenta hlut af Arion banka, Lindarhvoli, eignarhaldsfélagi ríkissjóðs, og Glitni HoldCo. Auk ýmissa íslenskra lífeyrissjóða eru aðrir hluthafar Klakka í dag BNP Paribas, erlendur sjóður í stýringu fjárfestingafélagsins CarVal, og félög á vegum bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona og Sigurðar Valtýssonar, viðskiptafélaga þeirra og fyrrverandi forstjóra Exista.
Tengdar fréttir Samþykktu 550 milljóna bónuspott fyrir stjórnendur Klakka Hluthafar Klakka, sem á Lykil, samþykktu kaupaukakerfi fyrir níu stjórnendur og stjórnarmenn félagsins. Lífeyrissjóðir eiga um 6 prósenta hlut en mættu ekki til að greiða atkvæði um kerfið. Hafa stutt stjórnarmann sem á rétt á bónus. 13. desember 2017 06:15 Boðar til mótmæla vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna Klakka Formaður VR lætur í ljós óánægju sína vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna stjórnenda Klakka og boðar til mótmæla næstkomandi föstudag. 13. desember 2017 10:34 Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Sjá meira
Samþykktu 550 milljóna bónuspott fyrir stjórnendur Klakka Hluthafar Klakka, sem á Lykil, samþykktu kaupaukakerfi fyrir níu stjórnendur og stjórnarmenn félagsins. Lífeyrissjóðir eiga um 6 prósenta hlut en mættu ekki til að greiða atkvæði um kerfið. Hafa stutt stjórnarmann sem á rétt á bónus. 13. desember 2017 06:15
Boðar til mótmæla vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna Klakka Formaður VR lætur í ljós óánægju sína vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna stjórnenda Klakka og boðar til mótmæla næstkomandi föstudag. 13. desember 2017 10:34