Elín Helga nýr framkvæmdastjóri hjá Hvíta húsinu Atli Ísleifsson skrifar 2. maí 2017 14:58 Elín Helga Sveinbjörnsdóttir og Gísli S. Brynjólfsson. Hvíta húsið
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hefur tekið við sem annar af tveimur framkvæmdastjórum auglýsingastofunnar Hvíta hússins ásamt Gísla S. Brynjólfssyni. Elín Helga verður framkvæmdastjóri viðskiptastýringar og Gísli framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hvíta húsinu. Gunnar Þór Árnason verður áfram hönnunarstjóri og Kristinn R. Árnason verður fjármálastjóri. „Undanfarnir 18 mánuðir hafa verið tími breytinga og sjálfsskoðunar hjá Hvíta húsinu. Í kjölfarið af stefnumótunarvinnu var farið í miklar breytingar á húsnæði og útliti fyrirtækisins. Stjórnendur fóru í stjórnendamat hjá Attentus og samhliða því fór Hvíta húsið í gegnum jafnlaunavottunarferli hjá VR. Þessi skipulagsbreyting, sem og ráðning nýs framkvæmdastjóra, kemur í kjölfar þessarar vinnu Hvíta hússins og er til þess fallin að skerpa á verkaskiptingu og ábyrgð stjórnenda. „Hvíta húsið stendur nú sterkar en nokkru sinni fyrr. Sú vinna sem við höfum farið í gegnum með starfsfólki hefur gefið okkur mikið og mun tryggja að við skilum viðskiptavinum okkar enn betri árangri en áður,“ segir Elín Helga. „Ég er mjög spennt fyrir því verkefni að leiða stofuna á þeim spennandi tímum sem framundan eru.“ Elín Helga hefur starfað hjá Hvíta húsinu í tólf ár sem einn af aðalráðgjöfum stofunnar. Hún er jafnframt einn af eigendum stofunnar og núverandi stjórnarformaður SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa. „Við erum mjög stolt af þeirri vinnu sem við höfum gengið í gegnum. Við höfum litið á öll okkar störf með gagnrýnum augum og lagt áherslu á að gera úrbætur þar sem þess hefur verið þörf,“ segir Gísli S. Brynjólfsson. „Jafnlaunavottunin var mikilvægur áfangi fyrir okkur. Til að fylgja henni eftir skiptir máli að framkvæmdastjórar stofunnar séu nú af báðum kynjum. Elín Helga hefur gríðarlega reynslu úr auglýsingabransanum sem mun nýtast vel við að leiða hönnunarsviðið og viðskiptastýringuna.“ Bæði Elín og Gísli munu áfram sinna stefnumótunarráðgjöf til viðskiptavina stofunnar samhliða stjórnunarstöðunum. Hvíta húsið var stofnað árið 1961 er ein af stærstu auglýsingastofnum landsins. Hjá Hvíta húsinu starfa 43 manns,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira