Frábær viðbrögð um alla Evrópu Gunnar Leó Pálsson skrifar 5. janúar 2016 09:45 Agent Fresco á góðri stund í Leeds.
Hljómsveitin Agent Fresco lauk nýverið við sína stærstu og umfangsmestu tónleikaferð til þessa. Tónleikarnir voru þrjátíu talsins og kom sveitin víða við í Evrópu á ferð sinni. „Þetta var þriðji langi túrinn okkar en þessi var ögn lengri en hinir. Við héldum af stað 18. nóvember og komum heim 21. desember og spiluðum um 30 tónleika. Flesta í Þýskalandi en við fórum um víðan völl eða til Hollands, Bretlands, Skotlands, Frakklands, Þýskalands, Póllands, Tékklands, Austurríkis, Slóveníu, Ítalíu, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands og Rússlands,“ segir Þórarinn Guðnason, gítarleikari sveitarinnar, spurður út í ferðalagið mikla.Hljómsveitin gisti meðal annars í gömlu slóvensku fangelsi.Mynd/Þórarinn GuðnasonAlls kyns tónleikastaðir Agent Fresco hafði áður spilað í nokkrum af þeim borgum sem sveitin heimsótti í þessari tónleikaferð og segist Þórarinn hafa fundið fyrir því að aðdáendahópurinn hafi stækkað í þeim borgum. „Við höfðum spilað í sumum þessara borga áður og fundum alveg greinilegan mun. Við spiluðum á tónleikastöðum sem rúma alveg frá um 150 manns upp í 600 manns. Stærð staðarins segir þó lítið um stemninguna sem myndast á tónleikunum og sumir af eftirminnilegustu tónleikunum voru á litlum stöðum. Til dæmis voru tónleikarnir á litlum klúbb tæpum tveimur vikum eftir árásirnar á Bataclan í París ótrúlega magnþrungnir og fallegir,“ útskýrir Þórarinn. Agent Fresco gaf á síðasta ári út sína aðra breiðskífu, Destrier, og skoraði hún mjög hátt hjá tónlistargagnrýnendum og var án nokkurs vafa ein af plötum ársins.Tónleikastaður undir lestarbraut í miðborg Vínar.mynd/Liam SextonRifist um bestu sætin Meðlimir sveitarinnar náðu að nýta tímann til þess að fræðast um þá staði sem þeir heimsóttu en tíminn var þó af skornum skammti. „Við vorum einir á ferð en nánast alltaf með upphitunarbönd. Það var skemmtilegt því þetta var oftast lókal fólk sem gat frætt mann aðeins um svæðið þó að lítill tími hafi gefist til að skoða sig um í borgunum sem við spiluðum í. Svo voru nokkrir tónleikar þar sem við vorum að hita upp fyrir stærri hljómsveitir.“ Löng ferðalög geta tekið á en hvernig fór um strákana þennan mánuð? „Við ferðuðumst um allt á „van“ sem var sérstaklega hannaður fyrir svona ferðalög. Breski tourmanagerinn okkar hann John keyrði, Arnór sat við hliðina á honum sökum bílveiki og ég, Keli, Vignir og Jói hljóðmaður rifumst um bestu sætin aftur í. Það var eitt rúm sem við lögðum bann á til að minnka hættu ef við skyldum lenda í árekstri. Svo gistum við á misgóðum hótelum í hverri borg,“ segir Þórarinn.Frábær stemning á tónleikum sveitarinnar í Moskvu.Mikill meðbyr þessa dagana Ég spyr Þórarin út í rokkstjörnulífernið, hvernig voru menn að meta lífernið á túrnum? „Þetta verður furðuleg rútína eftir ekki mjög langan tíma. Vakna, keyra mestallan daginn, róta inn, borða, spila, hitta fólk, róta út, keyra upp á hótel og endurtaka svo daginn eftir. Það er lítið svigrúm fyrir djamm og annað rugl í svona ferð og ég reyni að nýta þann litla frítíma sem við höfum til að hlaða batteríin eða gera eitthvað pródúktívt,“ útskýrir Þórarinn. Agent Fresco fékk frábær viðbrögð á tónleikum sínum og segist Þórarinn finna mikinn meðbyr þessa dagana. „Það sem stóð þó helst upp úr í tónleikaferðinni voru viðbrögðin sem við fengum frá fólki. Við finnum ótrúlegan meðbyr þessa dagana og það er greinilegt að fólk er að gefa sér tíma í að hlusta og pæla mikið í tónlistinni okkar bæði hér heima og úti sem er ótrúleg tilfinning og gerir allt harkið svo algerlega þess virði. Það voru líka nokkrir tónleikar sem voru sérstaklega eftirminnilegir. Tónleikarnir í London, Moskvu, Dresden og París voru til dæmis einstaklega góðir. Fólk var líka oft uppátækjasamt með skemmtilegar gjafir og notaði til dæmis myndina af vinkonu okkar henni Hebu sem prýðir framhliðina á Destrier til að skreyta köku og bassatrommuskinn.“Tourmanagerinn, John Helps sá um að skipuleggja, keyra og selja varning.Á leið í aðra tónleikaferð Agent Fresco á í nógu að snúast á næstunni og er að fara í aðra tónleikaferð síðar í þessum mánuði og þá með bandarísku rokkhljómsveitinni Coheed and Cambria. „Við erum að fara aftur út í janúar til að fara að spila með hljómsveitinni Coheed and Cambria sem er frábært tækifæri fyrir okkur til að ná til nýrra hlustenda enda mjög stórt band. Svo erum við bara byrjaðir að huga að næstu plötu og ég er svolítið í hugmyndavinnunni núna en fer á fullt á næstunni þegar tími gefst,“ segir Þórarinn.Jóhann Rúnar Þorgeirsson hljóðmaður hélt upp á þrítugsafmælið sitt á túrnum.Destrier kaka sem þeir félagar fengu frá breskum hóp sem elti sveitina á öll giggin í Bretlandi.mynd/arnór dan
Tengdar fréttir Agent Fresco í sjötta sæti á lista hjá MTV Íslenska hljómsveitin Agent Fresco er að gera það gott í Þýskalandi en sveitin vermir sjötta sætið á þýska smáskífulistanum hjá MTV. 28. desember 2015 14:30 Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sjá meira
Agent Fresco í sjötta sæti á lista hjá MTV Íslenska hljómsveitin Agent Fresco er að gera það gott í Þýskalandi en sveitin vermir sjötta sætið á þýska smáskífulistanum hjá MTV. 28. desember 2015 14:30