Geðlæknir veltir fyrir sér andlegu heilbrigði Sigmundar Davíðs Jakob Bjarnar skrifar 17. september 2016 11:40 Óttar Guðmundsson veltir því fyrir sér hvað Helgi Tómasson yfirlæknir hefði sagt um orð Sigmundar Davíðs? „
Hvað ætli Helgi heitinn Tómasson hefði sagt um raunveruleikaskyn þessa framsóknarmanns?“ spyr Óttar Guðmundsson geðlæknir í pistli sem hefur vakið hefur mikla athygli. Í pistlinum veltir Óttar með óbeinum hætti fyrir sér andlegu heilbrigði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, sem einmitt nú stendur í ströngu á Kjördæmaþingi Framsóknarflokksins fyrir austan. Óttar hefur pistil sinn á því að nefna Stóru bombu, eða Geðveikismálið sem skók Ísland árið 1930, þegar Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, greindi Jónasi Jónssyni frá Hriflu, dómsmálaráðherra, frá því að hann teldi Jónas haldinn alvarlegum geðsjúkdómi. Afleiðingar Stóru bombu urðu margvíslegar, meðal annars þær að Jónas vék Helga úr embætti. Óttar segir að íslenskir geðlæknar hafi æ síðan neitað staðfastlega að tjá sig um geðheilsu Framsóknarmanna. Óttar tæpir á atriðum úr ræðu Sigmundar Davíðs sem hann flutti fyrir viku á Miðstjórnarfundi flokksins. Og fer ekkert á milli mála að geðlækninum þykir hér vel í lagt eða svo vitnað sé beint í pistilinn: „Hann fór með himinskautum og opinberaði drauma sína og þrár. Stjórnmálaátök samtímans voru orðin að orrustunni við Waterloo og hann sjálfur umbreyttist í Wellington lávarð. Fylgismenn hans í Framsóknarflokknum voru fótgöngulið Englendinga sem beið komu Napóleons með brugðna byssustingi. Andstæðingurinn virtist vera hið fjölþjóðlega samsæri sem formaður flokksins hefur orðið fyrir, þar sem beitt er hlerunum, njósnum og alls konar bolabrögðum. Heimskapítalisminn, Evrópusambandið og svikulir blaðasnápar reyna að hafa manninn undir en Sigmundur Wellington kemur ósigraður úr hverri raun. Hann gefst aldrei upp þótt skuggalegir skíthælar reyni að drepa hann. Púðurreykur fyllir loftin blá og jakkafataklæddir menn með sólgleraugu elta formanninn á röndum, brjótast inn í tölvuna hans og bjóða uppá bjálkakofafundi. Vonandi meiða óbreyttir framsóknarmenn sig ekki á hvössum byssustingjunum. Hvað ætli Helgi heitinn Tómasson hefði sagt um raunveruleikaskyn þessa framsóknarmanns?“
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Fleiri fréttir Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Sjá meira