Leikjavísir

Far Cry Primal: Rússíbanareið hellisbúans

Samúel Karl Ólason skrifar
Söguhetja leiksins, Takkar, getur tamið rándýr Oros og nýtt þau í orrustu við óvini sína.
Söguhetja leiksins, Takkar, getur tamið rándýr Oros og nýtt þau í orrustu við óvini sína. Mynd/Ubisoft
Þrátt fyrir að vera á marga vegu líkur forverum sínum, er nýjasti Far Cry leikurinn, Primal, í grunninn mjög frábrugðinn þeim. Far Cry leikirnir eru fyrst og fremst gerðir til að vera skemmtilegir og veita spilurum frelsi til að valda usla á fjölbreyttan hátt í stórum opnum heimi og þar er FCP engin undantekning.

Síðast þegar undirritaður skrifaði dóm um Far Cry leik, sagði ég: „Líklega mun það ekki borga sig fyrir Ubisoft að leika sama leikinn þrisvar, ef svo má að orði komast, og vonandi verður meiri framþróun í næsta Far Cry leik.“

Í stað þess að fara fram á við ákvað Ubisoft hins vegar að farið yrði til baka. Nánar tiltekið um tólf þúsund ár aftur í tímann. Ekki er hægt að segja annað en að það hafi verið góð ákvörðun að taka.

Leikurinn gerist árið tíu þúsund fyrir Krist, í landinu Oros í norðanverðri Evrópu. Veiðimaðurinn Takkar, er á ferð ásamt hópi annarra úr Wenja ættbálknum í leit að fólki sínu þegar óhöppin hrannast upp.

Verkefni spilara er að koma meðlimum Wenja til bjargar og sameina ættbálkinn á ný, byggja upp þorp og sigra óvini þeirra.

Sem og í öðrum Far Cry leikjum þarf að safna auðlindum og veiða dýr, til þess að byggja upp vopnabúr Takkar og betrumbæta hann sem bardagamann. Þá eru fjölmörg verkefni sem hægt er að leysa í Oros, sem tengjast ekki aðal söguþræði leiksins og baráttu Wenja við óvinnveitta ættbálka.

Í Primal eru spilarar ekki gangandi vopnabúr eins og í fyrri Far Cry leikjum. Aðal vopn leiksins eru kylfur, spjót og bogar. Í stað hraðskreiðra bíla og báta er nú hægt að ríða ljónum, björnum og fílum. Í stað eiturlyfjabaróna, sérvitra einræðisherra og málaliða þurfa spilarar nú að berjast við frumstæða ættbálka og náttúruna.

Wenja ættbálkurinn er í hættu og verkefni Takkars er að koma þeim til bjargar.Mynd/Ubisoft
Náttúran kemur þó einnig til bjargar og hægt er að tæma rándýr Oros og nota þau til veiða og hernaðar. Leikurinn er mjög ofbeldisfullur og blóðugur, sem virðist eiga rétt á sér miðað við uppsetningu hans á forsögulegum tímum.

FCP keyrir á sömu grafíkvél og FC 3 og 4, en hún hefur verið uppfærð og leikurinn lítur mjög vel út. Sagan er þó frekar slöpp og fjendur Takkar eru litlausir. Fyrst og fremst er leikurinn þó einfaldlega skemmtilegur og þá sérstaklega bardagakerfi hans. Oros er risastórt land sem iðar af lífi og það er auðvelt að gleyma verkefninu sem fyrir liggur til að skoða hvað er á bakvið næstu beygju.

Hér að neðan má sjá hjartnæmt myndasafn af Takkar og Brandi, sem er uppáhalds gæludýr hans.

Brandur hefur mjög gaman af því að leika við aðra ketti.Vísir
Brandur eignaðist bróðir sem heitir Bjössi Björn.Vísir
Það er ekki hægt að fá Brand til að borða kattamat.Vísir
Brandur er algjört kúridýr.Vísir
Stundum fylgist Brandur ekki með þvi sem er að gerast í kringum sig. Eins og þegar loðfíll ræðst á hann.Vísir
Brandur er mjög nytjasamur.Vísir
Brandur svangur.Vísir
Brandur er svo stór og sterkur að það er hægt að fara á bak á honum.Vísir
Ég og Brandur rákumst á hóp manna í kvöldgöngu. Það endaði ekki vel.Vísir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×