Fleiri óska eftir kynleiðréttingu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 22. janúar 2016 08:42 Sífellt fleiri leita til Landspítalans og óska eftir kynleiðréttingaferli. Áður fyrr óskuðu um tveir á ári eftir aðstoð, en talan er nú komin upp í níu. vísir/valli
Sífellt fleiri leita til Landspítalans og óska eftir kynleiðréttingaferli. Yngra fólk leitar nú slíkrar aðstoðar í auknum mæli og hefur gríðarleg aukning orðið á meðal transkvenna. Þetta kom fram í máli Elsu Báru Traustadóttur sálfræðings sem situr í transteymi Landspítalans, á Læknadögum í Hörpu í gær. Hún sagði að áður fyrr hafi um tveir á ári beðið um meðferð. Nú sé talan komin upp í níu. „Ungar konur leita aðstoðar og segjast vilja fá þessa aðstoð til þess að geta lifað sem karlmenn. Það sama er að gerast í Evrópu og út um allan heim. Það er gríðarleg aukning meðal transmanna, en það var miklu miklu sjaldgæfara en transkonur,“ sagði Elsa.„Við heyrum fólk stundum segja „hann, hún eða það er hér“, jafnvel frá aðstandendum. Það vill enginn vera kallaður „það“.vísirHún tók það fram að ekki allt transfólk óski eftir að ganga alla leið í kynleiðréttingaferlinu. Sumir gangi einungis í gegnum hormónameðferð og/eða fari í brjóstnám. „Fólk finnur bara sína leið,“ sagði hún. Elsa sagði ýmsa sigra hafa verið unna. Margt hafi breyst á undanförnum árum – vonandi til bóta. Áður fyrr hafi fólk þurft að lifa í eitt ár í sínu rétta kynhlutverki, þ.e transkonur þurftu að lifa lífinu sem konur án hormónameðferðar, áður en þær gátu farið í hormónameðferð. Nú tekur greiningarferlið sex mánuði og ekki er gerð krafa um að fólk skipti um kynhlutverk fyrr en það kýs svo. „Við hvetjum gjarnan fólk til þess að byrja að einhverju leyti, eins og það treystir sér til, en að öðru leyti er ferlið svipað og það var. En það er í stöðugri endurskoðun.“Há tíðni þunglyndis og kvíðaraskana Hún sagði greiningarferlið afar mikilvægt. Það sé meðal annars framkvæmt af sálfræðingum og geðlæknum, enda sé tíðni þunglyndis, kvíðaraskana og sjálfsvíga á meðal transfólks mun hærri en almennt sé. „Erlendar rannsóknir sýna einnig að transfólk er útsettra fyrir ofbeldi af einhverju tagi; einelti, kynferðisofbeldi, nauðgun og hvers konar misnotkun eins og í vændi og klám.“ Fordómar eru viðvarandi víðast hvar að sögn Elsu. Þó virðist transfólk upplifa minni fordóma á Íslandi en annars staðar í heiminum. „Eftir því sem ég best veit virðist fólk hér ekki upplifa mikla fordóma, ekki eins og til dæmis í Bandaríkjunum,“ sagði hún og hvatti fólk til að vanda orðalag þegar komi að umræðum um transfólk. „Við heyrum fólk stundum segja „hann, hún eða það er hér“, jafnvel frá aðstandendum. Það vill enginn vera kallaður „það“.
Tengdar fréttir Heilbrigður lífsstíll besta forvörnin við Alzheimer Unnið er að því rannsaka hvernig greina megi sjúkdóminn áður en hann lætur á sér kræla. 21. janúar 2016 15:32 Gera þurfi betur í bólusetningum barna Andstaða við bólusetningar hefur á undanförnum árum sótt í sig veðrið að nýju í öllum þróuðum ríkjum með skipulögðum hætti, segir Haraldur Briem 20. janúar 2016 13:00 Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Innlent Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Innlent Fleiri fréttir Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Sjá meira
Heilbrigður lífsstíll besta forvörnin við Alzheimer Unnið er að því rannsaka hvernig greina megi sjúkdóminn áður en hann lætur á sér kræla. 21. janúar 2016 15:32
Gera þurfi betur í bólusetningum barna Andstaða við bólusetningar hefur á undanförnum árum sótt í sig veðrið að nýju í öllum þróuðum ríkjum með skipulögðum hætti, segir Haraldur Briem 20. janúar 2016 13:00