Dominos pítsa kaupir pítsastaði Pizzunnar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 11. júlí 2016 11:18 Frá Ánanaustum. Vísir
Dominos tekur yfir rekstur Pizzunnar að hluta til í sumar en félagið Pizza-pizza ehf. sem rekur Dominos hefur keypt tvo staði rekstrarfélagsins G. Arnfjörð sem rekur Pizzuna. Staðirnir sem um ræðir eru að Ánanaustum og í Gnoðarvogi. Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem hefur heimilað samrunann. Eftir hann verða áfram reknir fimm staðir undir merkjum Pizzunnar að því er fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Í raun er aðeins um að ræða yfirtöku á leigusamningi og búnaði hjá fyrrnefndum tveimur stöðum. Dominos pítsa tekur ekki til sín starfsmenn Pizzunnar eða annan hluta rekstrarins. „Samrunaaðilar telja markaðshlutdeild sína á ofangreindum markaði ekki nema því marki að hún hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist,“ segir í ákvörðuninni. „Þá telja samrunaaðilar að samruninn verði ekki til þess að raska samkeppni á markaði að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Rétt sé að líta til þess að mikil samkeppni ríki á umræddum markaði og litlar aðgangshindranir séu til staðar fyrir nýja aðila. Þá beri einnig að líta til þess að framboðsstaðganga sé mikil.“ Þá kemur fram að staðirnir muni halda áfram að starfa „með nær óbreyttum hætti.“ Samkeppnisleg áhrif samrunans eru óveruleg þar sem ekkert bendir til þess að með honum öðlist Dominos markaðsráðandi stöðu á heildarmarkaði fyrir veitinga- og skyndibitastaði á höfuðborgarsvæðinu. Hér má nálgast ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í heild sinni.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira