BL stefnir í 5.000 bíla Finnur Thorlacius skrifar 5. október 2016 12:15 Hyundai er söluhæsta bílamerki BL.
Alls voru 4.502 bílar af merkjum sem BL hefur umboð fyrir nýskráðir fyrstu níu mánuði ársins. Það er 60% aukning frá sama tímabili í fyrra þegar 2.806 bílar voru skráðir á tímabilinu. Hjá BL var 261 bíll nýskráður í september, þar af 244 til einstaklinga og fyrirtækja, og var markaðshlutdeild fyrirtækisins 22,9% í mánuðinum. Í heild nemur hlutdeild BL 26,1% fyrstu níu mánuði ársins en 26,6% sé einungis litið til bílakaupa einstaklinga og fyrirtækja án bílaleiga. Ekkert annað bílaumboð hefur selt jafn marga bíla á árinu og BL og er nú fastlega gert ráð fyrir að rúmlega fimm þúsund bílar af merkjum BL verði nýskráðir á árinu. Þegar litið er til söluhæstu einstakra bíltegunda hjá BL í september voru 78 Nissan bílar nýskráðir, 61 frá Hyundai og sami fjöldi af gerðinni Renault. Sem fyrr er Hyundai söluhæsta einstaka bíltegund BL ehf. með alls 1.267 nýskráða á árinu. Alls voru 79 bílaleigubílar skráðir í september, þar af 17 af gerðum sem BL hefur umboð fyrir og munaði mest um Renault þar sem þrettán bílar voru nýskráðir til bílaleiganna. Í heild voru 40% fleiri bílaleigubílar nýskráðir fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra, alls 8.218 í ár samanborið við 5.859 í fyrra. Munurinn er 2.359, en athyglisvert er að aðeins munar einum bíl á fjölda nýskráðra bílaleigubíla í nýliðnum september og sama mánuði 2015. Verulega hefur því hægst á nýskráningum bílaleigubíla.Hér má sjá sölu allra bílaumboðanna í september og á árinu öllu.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Erlent