Segir að staða innlendra framleiðenda myndi veikjast Samúel Karl Ólason skrifar 15. mars 2016 17:54 Innlendir bjórframleiðendur eru nú orðnir sjö talsins og eru bjórtegundir þeirra orðnar hátt í 70. Vísir/ernir
Samtök iðnaðarins segja að yrði áfengisfrumvarpið samþykkt myndi það veikja stöðu innlendra bjórframleiðenda. Þeir eru nú orðnir sjö talsins og eru bjórtegundir þeirra orðnar hátt í 70. Yrði sala áfengs bjórs leyfð í búðum er það mat SI að það myndi styrkja erlend vörumerki og fyrirtæki. Í tilkynningu frá SI segir að erlendir aðilar hafi forskot vegna heimilda til að auglýsa vörur sínar í fjölmiðlum sem berist hingað til lands. Innlendir framleiðendur hafi ekki sama möguleika. Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, segir í tilkynningunni samtökin vilja stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi framleiðenda enda sé það allra hagur að hér dafni blómlegur iðnaðar. „Við viljum að þeir fjölmörgu gestir sem heimsækja landið eigi þess kost að gæða sér á innlendri framleiðslu. Því er mikilvægt að hugað sé að því að innlendir framleiðendur áfengra drykkja hafi sömu möguleika og erlendir framleiðendur að koma vörum sínum á framfæri,“ segir Almar. Ekki megi gleyma því að innlend framleiðsla skilji eftir sig meiri virðisauka fyrir samfélagið en innflutningur geri. Almar biðlar til þingmanna að hafa í huga hvaða afleiðingar frumvarpið gæti haft á innlenda framleiðslu. „Ef um er að ræða vörur sem keppa á frjálsum markaði verður að fylgja því frelsi til að kynna vörurnar. Til að veikja ekki stöðu innlendra framleiðenda er því nauðsynlegt að greina betur áhrifin af þeim lagabreytingum sem felast í frumvarpinu. Við höfum bent allsherjar- og menntamálanefnd á þetta með skýrum hætti og þess vegna kemur það á óvart að málið sé afgreitt úr nefnd án þess að meiri greining fari fram.“
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira