Það er sungið alla morgna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. mars 2016 10:15 „Ísaksskóli er eins og flennistórt heimili þar sem allir þekkja alla og samheldnin er mikil,“ segir Sigríður Anna skólastjóri. Vísir/Ernir „
Hér er byggt á gömlum hefðum og þær eru fallegar,“ segir Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla, og útskýrir nánar hvað hún á við. „Hér er kærleiksríkur agi. Börnin fara í raðir. Þau heilsa kennaranum sínum á morgnana með handabandi og augnsambandi og kveðja á sama hátt og þau raða skónum sínum með hæla upp við vegg.“ Ísaksskóli var stofnaður af Ísak Jónssyni fyrir 90 árum og þar hafa margir Íslendingar tekið sín fyrstu skref á menntabrautinni. „Við eigum kladdana alveg frá upphafi, þeir eru komnir niður á Borgarskjalasafn,“ segir Sigríður Anna, þar sem við sitjum inni á skrifstofunni hennar sem snýr glugga út í Stakkahlíðina. Hún segir skólann hafa verið víða í bænum áður en hann kom í þetta hús. „Frumkvöðullinn Ísak var kominn með það orðspor að gott væri að börn byrjuðu hjá honum svo skólanum óx fiskur um hrygg. Ísak samdi Gagn og gaman og var sá fyrsti sem innleiddi hljóðaðferðina við lestrarkennslu, það hefur aldrei verið hvikað frá þeirri leið hér, enda gefst hún vel.“ Sigríður Anna segir sönghefðina í skólanum líka sterka. „Það er sungið í öllum stofum alla morgna og tvisvar í viku á sal, þar sem öll 250 börnin koma saman. Að heyra fimm ára börn syngja Nú árið er liðið og Ólafur Liljurós – öll erindin – er yndislegt. Skipt er um söngskrá á þriggja vikna fresti og ég er sannfærð um að takturinn og orðaforðinn sem kemur í gegnum sönginn er hluti af farsælli máltilfinningu nemenda. Hvað þýðir halur og hvað þýðir drós? Það prentast inn.“ Ekki er látið nægja að syngja á íslensku, því í Ísaksskóla byrja börn í ensku fimm ára og spænsku sex ára og syngja á þeim tungum inn á milli. Nú er sem sagt afmælisár og upp á það verður haldið, að sögn Sigríðar Önnu. „Það er langt síðan við ákváðum að gera heimildarmynd um skólann og Ísak, vinir Ísaksskóla eru að safna fyrir gerð hennar á Karolinafund og söfnuninni lýkur í kvöld,“ lýsir hún. „Mikil væntumþykja er í garð skólans og fólk man vel eftir veru sinni hér. Það líður ekki sá dagur að það komi ekki eitthvað fallegt til mín frá gömlum nemendum eða öðrum,“ segir Sigríður Anna sem hefur verið við stjórnvölinn í sjö ár en finnst hún hafa byrjað í gær. „Úrvalshópur starfsfólks er að draga sama vagn í sömu átt og það eru forréttindi að fá að vera í þeirri jákvæðu orku sem hér er innan dyra.“
Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Valin versti ljósmyndari heims Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira