Kristján segir fjölda eggja vera mjög svipaðan ár eftir ár enda vilji allir fá sitt páskaegg. Nói Síríus selji um milljón egg á ári.
Undirbúningur fyrir páskaeggjasölu næsta árs er þegar hafinn að sögn Kristjáns. „Það má að segja að árið og jafnvel rúmlega það fari í páskaeggjavertíðina. Það tekur alltaf svo langan tíma að undirbúa og fá afhent. Vöruþróun þarf að eiga sér stað með miklum fyrirvara,“ segir hann.

Hins vegar sé góður vöxtur í útflutningi á almennu sælgæti hjá Nóa Síríusi. „Við erum að ná smá sigrum hér og þar og erum á áætlun,“ segir Kristján.
Pétur Thor Gunnarsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Freyju, segir eina helstu breytinguna sem orðið hafi á framleiðslu síðustu ára vera að mikill meirihluti eggja sé seldur með sælgæti í skelinni. Dæmi um það séu Drauma- og Rísegg. Hjá Freyju standi páskaeggjavertíðin yfir hálft árið. Tekjurnar komi svo á mjög skömmum tíma í kringum páskana. „Við sjáum algjöra sprengingu í sölu á fjórum og allt niður í tvær vikur fyrir páska,“ segir Pétur.