Kannar hvort koma eigi á gjaldskyldu á Vesturgötu, Mýrargötu, Nýlendugötu og Bakkastíg Atli Ísleifsson skrifar 9. mars 2016 23:30 Í síðasta mánuði var greint frá því að til standi að gera bílastæðin í Brautarholti, Skipholti og næsta nágrenni gjaldskyld. Vísir/AFP
Bílastæðasjóður hefur leitað eftir umsögnum íbúa við Vesturgötu, Mýrargötu, Nýlendugötu og Bakkastíg í Reykjavík um hvort áhugi sé fyrir því hvort gera eigi bílastæði við göturnar gjaldskyld. Í bréfi Bílastæðasjóðs til íbúa við göturnar segir að fyrir liggi ósk frá íbúum við Nýlendugötu um gjaldskyldu á svæðinu þar sem íbúar þar og í nærliggjandi götum hafi ítrekað lent í bílastæðavandræðum þar sem uppbygging á svæðinu hafi aukist verulega. „Ef vilji er fyrir hendi hjá íbúum Nýlendugötu, Mýrargötu, Bakkastígs og Vesturgötu milli Ægisgötu og Seljavegs að gera bílstæði gjaldskyld þá er Bílastæðasjóður tilbúinn að framkvæma það,“ segir í bréfinu og er bent á að reynslan sýni að með gjaldskyldu sé mögulegt að hafa veruleg áhrif á hverjir noti tiltekin stæði og í hvaða tilgangi. Íbúar með lögheimili við götu þar sem bílastæði eru gjaldskyld og eru ekki með bílastæði á lóð sinni eiga þess kost að sækja um sérstök bílastæðakort íbúa sem veita heimild til að leggja einni bifreið án endurgjalds innan þess svæðis sem íbúakortið tekur til. „Bílastæðasjóður leggur mikla áherslu á samráð og samvinnu í málum sem þessu, og eru því allir hlutaðeigandi hvattir til að láta skoðun sína í ljós. Til þess að þetta samráð skili tilætluðum árangri er mjög mikilvægt að íbúar komi skoðun sinni á framfæri hvort sem þeir eru með eða á móti gjaldskyldu, innan 2ja vikna frá dagsetningu þessa bréfs. Ef lítil viðbrögð verða við bréfi þessu verður litið svo á að ekki sé áhugi fyrir gjaldskyldu,“ segir í bréfinu sem dagsett er 1. mars síðastliðinn. Í síðasta mánuði var greint frá því að til standi að gera bílastæðin í Brautarholti, Skipholti og næsta nágrenni gjaldskyld.
Tengdar fréttir Stæði verða gjaldskyld vegna fleiri íbúa Fram kemur í bréfi Reykjavíkurborgar til íbúa að töluverðar byggingaframkvæmdir séu á svæðinu með allmikilli fjölgun íbúa í nágrenninu. 8. febrúar 2016 06:00 Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira
Stæði verða gjaldskyld vegna fleiri íbúa Fram kemur í bréfi Reykjavíkurborgar til íbúa að töluverðar byggingaframkvæmdir séu á svæðinu með allmikilli fjölgun íbúa í nágrenninu. 8. febrúar 2016 06:00