Systrasamlaginu á Seltjarnarnesi verður lokað: „Okkur finnst þetta mjög dapurlegt“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. desember 2016 10:34 „
Þegar maður getur ekki horft til framtíðar á nesinu þá verður maður að gera eitthvað í málunum, því miður,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, annar eigandi Systrasamlagsins á Seltjarnarnesi sem er bæði lítil verslun og kaffihús í skúr á lóðinni við Neslaugina. Guðrún og systir hennar, Jóhanna Kristjánsdóttir, opnuðu Systrasamlagið í júní 2013 en þær eru nú að hætta rekstri á nesinu og flytja verslunina niður í miðbæ Reykjavíkur á Óðinsgötu 1. Ástæðan er sú að Seltjarnarnesbær á lóðina sem skúrinn stendur á og vill ekki gera leigusamning við eiganda skúrsins til lengri tíma en eins árs í senn.Seltirningar og fastakúnnar ósáttir við lokunina Mikil umræða hefur skapast um lokun Systrasamlagsins í íbúagrúppu Seltirninga á Facebook og er það ekki ofsögum sagt að margir íbúar eru afar ósáttir við að verslunin þurfi að loka. Þannig segja margir að það sé „sorglegt“ og „glatað“ að systurnar þurfi að loka og Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar segir: „Ótrúlega sorglegt mál. Minni á að þetta er aðeins á herðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Við í minnihlutanum höfum beitt okkur fyrir að standa vörð um lítil fyrirtæki á Nesinu og reynt að fá meirihlutann til að gera eðlilegan samning við eiganda húsnæðisins. Glatað hvað meirihluti með aðeins 52,6% meirihluta getur beitt miklu valdi.“ Þá tjáir fjölmiðlakonan Eva María Jónsdóttir sig einnig í umræðunum og segir: „Vér fastakúnnar verðum að stöðva þessa vitleysu. Þetta þarf ekki að fara svona. Ég mun ekki sætta mig við að skipta þessu sjálfsprottna heilsuhofi út fyrir sjoppu eða alþjóðlega veitingakeðju.“Ekki hægt að byggja upp rekstur þegar rekstrargrundvöllur er ekki tryggður Guðrún segir að þeim systrum hafi verið vel tekið ekki bara af Seltirningum heldur einnig af Vesturbæingum og að fólk hafi í raun komið hvaðanæva að til versla hjá þeim. Að sögn Guðrúnar stefndu þær Jóhanna á að byggja reksturinn upp á nesinu enda hafa þær sterkar rætur þar; þær eru ekki bara þaðan heldur einnig foreldrar þeirra, ömmur, afar, langömmur og langafar. Það sé hins vegar ekki hægt að byggja upp rekstur þegar ekki er hægt að tryggja rekstrargrundvöll til lengri tíma en frá ári til árs. „Við þurftum auðvitað aðeins að hugsa málið en í stað þess að loka alveg þá kom upp í hendurnar á okkur æðislegt húsnæði og við erum með svo margar hugmyndir að þetta húsnæði á nesinu var kannski að verða of lítið fyrir okkur,“ segir Guðrún.„Ógæfulegt fyrir meirihlutann í bæjarstjórn“ Systurnar stefna á að loka á Seltjarnarnesi og opna á nýjum stað í upphafi nýs árs, nálægt mánaðamótunum janúar/febrúar. Guðrún segir að það séu blendnar tilfinningar að fara af nesinu og að þær muni sakna Seltirninga. Hún gagnrýnir stefnu bæjaryfirvalda þegar kemur að rekstri smærri fyrirtækja á Seltjarnarnesi. „Okkur finnst þetta mjög dapurlegt en ég hef stundum hugsað það, vegna þess að þau hafa ekki verið neitt sérstaklega skýr í þessum málum, hvorki við okkur né bæjarbúa, hvort að Seltjarnarnes sé kannski of lítill bær til að vera með eigin bæjarstjórn, hvort það ætti bara að fara að sameina þetta öðru sveitarfélagi. En já, mér finnst þetta ógæfulegt fyrir meirihlutann í bæjarstjórn að hafa ekki tekið skýrari afstöðu til smáfyrirtækja sem vilja vera hér á nesinu,“ segir Guðrún og bætir við: „Mér finnst þetta vera pínulítið eins og Davíð og Golíat. Maður hefur ekkert í pólitíkina og þá þarf maður bara að vera skynsamur, finna einhverjar aðrar glufur og halda áfram.“ Í viðtali við Fréttatímann segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, að vegna samþykktar frá árinu 2007 um að gera bílakjallara á þessum stað hefur bærinn ekki viljað leigja lóðina út nema til eins árs í senn eftir að langtímaleigusamningur eiganda skúrsins rann út árið 2014. Hún segir þó ekkert ákveðið hvort eða hvenær eigi að ráðast í þær framkvæmdir og segir að málið sé að öðru leyti á milli Systrasamlagsins og húseiganda.
Mest lesið Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Sjá meira