Jól

Vísir og Fréttablaðið leita að jólamynd ársins

Þorgeir Helgason skrifar
Heiðar Örn Jónsson sigraði í keppninni í fyrra með mynd af syni sínum sem sat agndofa við jólatréð.
Heiðar Örn Jónsson sigraði í keppninni í fyrra með mynd af syni sínum sem sat agndofa við jólatréð. Mynd/Heiðar Örn
Vísir og Fréttblaðið efna til jólaljósmyndasamkeppni. Þema keppninnar eru jólin og allt sem þeim fylgir.

Sigurmyndin mun rata í Fréttablað aðfangadags og sigurvegarinn hlýtur glæsilega Nikon D7200 myndavél frá Heimilistækjum.

Hægt er að kynna sér vélina nánar á vefnum nikon.is. Neðst í fréttinni má síðan sjá kynningarmyndband fyrir vélina.

Úrval bestu myndanna verða birtar ásamt sigurmyndinni í Fréttablaði aðfangadags.

Frá og með deginum í dag gefst þeim sem vilja taka þátt í keppninni kostur á að senda mynd á netfangið jolamyndakeppni@365.is. Hægt er að senda jólamyndir fram á miðvikudag í næstu viku. Mælst er til þess að aðeins sé send ein mynd á hvern ljósmyndara.

Hægt er að fylgjast með framgangi keppninnar á síðunni visir.is/jolamyndakeppni eða undir flipanum Jólamynd ársins, en þar munu allar myndirnar birtast.




Tengdar fréttir

Gleðileg jól í ævintýraskógi

Vísir sendir lesendum sínum jólakveðju með bestu ljósmyndunum sem sendar voru inn í jólamyndakeppni Fréttablaðsins og Vísis.

Jólahornin og Skarðshyrnan

Vísir sendir lesendum sínum jólakveðju með úrvali úr ljósmyndum sem sendar voru inn í jólamyndakeppni Fréttablaðsins og Vísis.






×