Viðskipti innlent

Steinþór fær árslaun upp á 23 milljónir eftir starfslok

Birgir Olgeirsson skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Vísir/Stefán
Steinþór Pálsson, fráfarandi bankastjóri Landsbankans, fær greidd laun í eitt ár frá því störfum hans fyrir bankann lýkur. Steinþór var með 1.950 þúsund í mánaðarlaun hjá bankanum og fær 23,4 milljónir yfir þetta ár frá því störfum hans lýkur.

Steinþór lét í gær af störfum sem bankastjóri Landsbankans en um var að ræða samkomulag hans og bankaráðs Landsbankans. Við starfslok hans var ekki samið um greiðslur umfram þann rétt sem kveðið var á um í ráðningarsamningi.

Hann hafði verið bankastjóri frá 1. júní 2010 en nýverið sendi Ríkisendurskoðun frá sér skýrslu þar sem kom fram hörð gagnrýni á eignasölu Landsbankans á árunum 2010 til 2016.

Var það mat Ríkisendurskoðunar að þessar eignasölur á undanförnum árum hefðu skaðað orðspor Landsbankans.

Var sérstaklega fjallað um sölu Landsbankans á eignarhlutum hans í Vestia og Icelandic Group árið 2010, Promens árið 2011 og jafnframt Framtakssjóði Íslands og IEI árið 2014.

Einnig er fjallað um söluna á hlutum bankans í Borgun og Valitor árið 2014. Bendir Ríkisendurskoðun á að allar þessar sölur hafi farið fram í lokuðu ferli og í sumum tilvikum hafi líklega fengist lægra verð fyrir eignar­hlutina en vænta mátti mið­að við verð­mætin sem þeir geymdu.

Þá er Landsbankinn gagnrýndur sérstaklega fyrir að hafa ekki aflað sér nægilegra upplýsinga um greiðslukortafyrirtækið Borgun, meðal annars um aðild fyrirtækisins að Visa Europe Ltd. Segir Ríkisendurskoðun erfitt að meta þá fjárhæð sem Landsbankinn fór á mis við þegar fyrirtækið var selt Visa International, þar sem hagnaður Borgunar (um 6,2 milljarðar) hafi orðið til eftir sölu eignarhlutarins.

Í tilkynningu vegna starfslokanna sagðist Steinþór skilja sáttur við sín störf.


Tengdar fréttir

Framtíð bankastjórans í óvissu

Ríkisendurskoðun átelur Landsbankann fyrir aðferð við sölu eigna árin 2010 til 2016. Orðsporið sé skaðað. Endurheimta þurfi traust. Bankinn aflaði sér ekki nægra upplýsinga um Borgun fyrir sölu fyrirtækisins.

Landsbankinn tekur skýrslu Ríkisendurskoðunar alvarlega

Í skýrslunni er það aðallega gagnrýnt að bankinn hafi selt eignir í lokuðu söluferli á því tímabili sem skýrslan nær til en gagnrýnin snýr meðal annars að sölu bankans á eignarhlut sínum í kortafyrirtækinu Borgun.

Steinþór tjáir sig ekki um skýrslu

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hefur ekki svarað ítrekuðum beiðnum Fréttablaðsins um viðtal vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×