Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 1. desember 1. desember 2016 15:30
Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á hverjum einasta degi fram að jólum. Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt. Í dag er fyrsti desember og Hurðaskellir ætlar að fá sér fyrsta molann í súkkulaðidagatalinu sínu. Hann grípur þá í tómt því einhver hefur klárað alla molana úr dagatalinu hans. Nú á hann ekkert dagatal. En Hurðaskellir er heppinn að eiga góða systur því Skjóða systir hans hjálpar honum að búa til nýtt dagatal.Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.
Jólafréttir Mest lesið Spennufíkill korter fyrir jól Jólin Grýla vill fá krakka í pokann Jól Spáð er hvítum jólum fyrir norðan og vestan Jól Á Betlehemsvöllum Jól Grýla, Leppalúði með Gunna og Felix í Þjóðminjasafni Íslands Jólin Mosfellingar gleðjast - myndir Jól Hnoðuð terta Jól Allir geta gert góðan jólamat Jól Fær enn í skóinn Jól Spenningurinn að ná hámarkinu Jól