Glamour

Afslöppuð og skemmtileg tískusýning Chanel

Ritstjórn skrifar
Lily-Rose Depp gekk sína fyrstu tískusýningu.
Lily-Rose Depp gekk sína fyrstu tískusýningu. Myndir/Getty
Tískusýningar franska tískuhússins Chanel verða alltaf flottari með hverju skiptinu og sýningin sem haldin var í gær var alls engin undantekning. Hún var haldin í te-herberginu á hinu sögufræga Ritz hóteli í París sem er ný búið að endurbyggja eftir bruna. 

Coco Chanel sjálf bjó á hótelinu í 35 ár svo að staðsetningin er þýðingarmikil fyrir tískuhúsið. Það sýndi sig á gestalistanum sem og fyrirsætunum sem gengu afslappaða tískupallinn á milli borðana í salnum. 

Lily-Rose Depp gekk sína fyrstu tískusýningu en hún var andlit sólgleraugnalínu Chanel fyrr á árinu og er núna andlit Chanel No.5 L'eau. Sofia Richie gekk einnig pallinn í fyrsta skiptið en með þeim var reynsluboltinn Cara Delevigne. Georgia May Jagger var einnig á meðal fyrirsæta en það er langt síðan hún hefur komið fram á tískusýningum.

Sofia Richie gekk í fyrsta sinn fyrir Chanel.
Cara Delevigne er fastagestur á tískupöllum Chanel.
Georgia May Jagger hafði tekið sér pásu frá tískupöllunum en hún snéri aftur fyrir Chanel.

#chanel #metiersdart #pariscosmopolite #ritzparis @chanelofficial @ritzparis

A video posted by Vogue Paris (@vogueparis) on

#ParisCosmopolite #ChanelMetiersdArt

A video posted by CHANEL (@chanelofficial) on

@CaraDelevingne #ParisCosmopolite #ChanelMetiersdArt

A photo posted by CHANEL (@chanelofficial) on

Cara is back #pariscosmopolite @virginiemouzat

A video posted by The Catwalk Italia - TCI (@thecatwalkitalia) on






×