Afkoma Reykjavíkurborgar jákvæð um 1,8 milljarða Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. nóvember 2016 16:48 Frumvarp að fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 og fimm ára áætlun fyrir árin 2017-2021 voru lögð fram í borgarstjórn í dag. Vísir/GVA
Frumvarp að fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 og fimm ára áætlun fyrir árin 2017-2021 voru lögð fram í borgarstjórn í dag. Áætluð rekstrarniðurstaða Reykjavíkurborgar árið 2017 er jákvæð um 15,2 milljarða króna. Í tilkynningu frá borgarstjórn segir að góðan afgang megi einkum rekja til Orkuveitu Reykjavíkur og Félagsbústaða hf. Þá er áætluð rekstrarniðurstaða borgarsjóðs (A-hluta) jákvæð um 1,8 milljarða. Til samanburðar var afkoma A-hluta neikvæð um 13,6 milljarða króna árið 2015. Þá er gert ráð fyrir rekstrarafangi upp á 241 milljón króna árið 2016.Lækkandi skuldir „Rekstur borgarinnar er traustur og í honum felast sóknarfæri til vaxtar og fjárfestinga. Við höldum áfram að fjárfesta í öflugum innviðum og umfangsmikilli húsnæðisuppbyggingu en höfum líka náð að brúa bilið vegna mikilla launahækkana án þess að hækka skatta. Reksturinn skilar hóflegum afgangi sem er nauðsynlegur fyrir góða afkomu til framtíðar. Við megum þó hvergi slaka á í aðhaldi með rekstrinum,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Árið 2015 hækkaði skuldahlutfall A-hluta úr 77,1% í 88,6% vegna mikillar hækkunar lífeyrisskuldbindinga. Árin 2016-2018 er gert ráð fyrir nokkuð stöðugu skuldahlutfalli og að það lækki í jöfnum skrefum til ársins 2021. Skuldir Reykjavíkurorgar hafa lækkað jafnt og þétt frá árinu 2012. Skuldahlutfall samstæðunnar hefur lækkað úr 268% frá árinu 2012 í 184% ´rið 2017 og verður komið niður fyrir 150% viðmið í sveitarstjórnarlögum árið 2021.Segja Reykjavíkurborg eitt skuldsettasta sveitarfélagið Í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins segir að Reykjavíkurborg sé eitt skuldsettasta sveitarfélag landsins, þrátt fyrir rekstrarbata borgarinnar og að engin teikn séu á lofti þess efnis að skuldir og skuldbindingar samstæðu A og B hluta séu að lækka. „Þær verða áfram rétt um 300 milljarðar kr. og skuldir A hluta munu hækka út 80,7 milljörðum kr. í 91 milljarð kr. milli ára. Þá benda áætlanir einnig til þess að samstæða Reykjavíkurborgar verði yfir löglegu hámarki skuldahlutfalls skv. sveitarstjórnarlögum til a.m.k. ársins 2020 en lækkun skuldahlutfalls er drifin áfram af hækkun tekna eins og segir í kynningu á frumvarpinu að fjárhagsáætlun. En þetta þýðir að Reykjavíkurborg verður áfram í hópi skuldugustu sveitarfélaga landsins þrátt fyrir óhemju hagstæði ytri skilyrði,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Sjá meira