Lambakjöt frá Texas Magga olli matareitrun í brúðkaupi Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 13. október 2016 23:55 Veisluþjónustan er í eigu Magnúsar Inga Magnússonar, sem er betur þekktur sem Texas Maggi. Vísir/GVA/Getty
Brúðkaupsveisla í Sandgerði í júlí síðastliðnum endaði illa þegar hluti veislugesta veiktust að matareitrun með meðfylgjandi uppköstum, magaverkjum og niðurgangi. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi sóttvarnalæknis. Í fréttabréfinu kemur fram að maturinn sem borinn var á borð í veislunni hafi verið lagaður af veitingahúsi í Reykjavík og fluttur til Sandgerðis með ófullnægjandi hætti að mati Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Sóttvarnalæknir gerði tilfellaviðmiðunarrannsókn með það að leiðarljósi að finna hvaða matvæli veislunnar gætu tengst veikindunum. Var niðurstaðan sú að tengsl voru milli veikindanna og neyslu á lambakjöti og súpu sem borin voru fram í veislunni. Af einkennum veislugesta að dæma var líklega um að ræða matareitrun og telur sóttvarnalæknir að líklega hafi lambakjötið verið uppspretta veikindanna. Brúðurin, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, lýsti atvikinu í ítarlegri Facebook færslu í sumar og sagði þar að veisluþjónustan sem um ræðir heiti Mínir menn. Sú veisluþjónusta er í eigu Magnúsar Inga Magnússonar, betur þekktur sem Texas Maggi. „Það var ekki fyrr en að fólk fór að týnast hljóðlega í burtu stuttu eftir aðalrétt löngu áður en að öll atriði voru búin sem við fórum að spyrjast fyrir hvað væri í gangi og fengum þá að vita það jú að stór hluti fjölskyldunnar okkar þurfti að fara heim vegna matareitrunar i brúðkaupsveislunni okkar !! Á þessum stæðsta degi í lífi okkar !!!!” skrifar Sigurbjörg meðal annars í júlí.Facebook færslu Sigurbjargar má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira