Miklar umferðartafir milli Gullfoss og Geysis vegna fjárrekstrar Birgir Olgeirsson skrifar 9. september 2016 13:36 Sauðfé á leið í réttir. Vísir/GVA
Miklar umferðartafir mynduðust á leiðinni milli Gullfoss og Geysis í dag en þar mættust má segja tvær atvinnugreinar. Annars vegar farþegaflutningabílar með túrista sem þurftu að þola smá bið á meðan verið að að reka fé yfir veginn. Lögreglan á Suðurlandi hafði áður minnt vegfarendur á að búast mætti við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra:Föstudaginn 9 .sept Biskupstungnabraut (vegur 35) , milli Gullfoss og Geysis frá kl: 11:30 til 13:30. Skeiða- og Hrunamannavegur (vegur 30) við Gýgjarhól milli kl.: 14:00 og 15:30. Einholtsvegur (vegur 358) frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á kvöld.Laugardaginn 10. sept Biskupstungnabraut (vegur 35) frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi. Einholtsvegur (vegur 358) frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.Á vef Skeiða- og Gnúpverjahrepps segir: Skaftholtsréttir verða þann 16. september og hefjast kl. 11:00. Þann dag verður vegur 32. lokaður fyrir umferð út úr sveitinni frá kl. 16:00 -20:00 frá Árnesi að Reykjaréttum. Í Skaftárhreppi er réttardagur þann 10. september en þar er réttað í Skaftárrétt kl. 09:00 Fossrétt kl. 13:00 og Grafarrétt kl. 10:00 Lögreglan segir þetta aðeins hluta þeirra fjárrétta og rekstra sem við er að búast næstu vikurnar og mikilvægt að vegfarendur hagi akstri í samræmi við þær hættur sem þetta hefur í för með sér. Bæði gagnvart búfénaði og smölunum sjálfum. Jafnframt hvetjum við smala til að vera vel sýnilega og gjarnan í endurskinsvestum.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira