Plain Vanilla var stofnað árið 2010 af Þorsteini B. Friðrikssyni og kynnti snjallsímaleikinn The Moogies til sögunnar árið 2011. Leikurinn var ætlaður fyrir börn á aldrinum tveggja til sex ára. The Moogies naut ekki mikilla vinsælda og þá leitaði fyrirtækið á ný mið. Útkoman varð QuizUp, spurningaleikur fyrir snjalltæki. Leikurinn naut töluverða vinsælda og starfsemi fyrirtækisins jókst hratt. Í lok árs 2013 bárust fréttir af því að hluthafar Plain Vanilla hefðu hafnað tólf milljarða yfirtökutilboði bandaríska tölvuleikjafyrirtækisins Zynga Games.Þorsteinn Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, ræddi hraðan uppgang fyrirtækisins við Þorbjörn Þórðarson í Klinkinu á Vísi í janúar 2014.Í viðtali við Jón Ársæl í Sjálfstæðu fólki í janúar 2015, sem sjá má brot úr hér að neðan, sagði Þorsteinn Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, að erlendir fjárfestir hefðu sýnt fyrirtækinu mikinn áhuga. Jafnvel boðist til að senda einkaþotur til Íslands til að flytja hann til Las Vegas í skemmtiferð.Fyrirtækið gerði mikið úr því að markaðsetja sig sem góðan vinnustað. Mikil fríðindi voru sögð fylgja starfi hjá fyrirtækinu þar sem kokkkur frá Argentínu steikhúsi eldaði mat fyrir starfsmenn fjóra daga vikunnar, starfsmenn fengu allar þær Apple vörur sem þeir þyrftu og ókeypis líkamsræktarkort. Einu sinni í mánuði voru haldnir búningadagar hjá fyrirtækinu og reglulega voru haldin karíókí-kvöld. Vorið 2014 voru starfsmenn fyrirtækisins orðnir fjörutíu og fyrirtækið flutti í húsnæði sitt við Laugaveg 77. Í nóvember 2014 var tilkynnt um að uppfærsla á QuizUp ætti að auka tekjur Plain Vanilla. Leiknum var á vissan hátt breytt í samfélagsmiðil sem átti að keppa við risa á borð við Facebook og Twitter. NBC sjónvarpsstöðin lagði töluvert í kynningarherferð fyrir QuizUp-þættina á sjónvarpsráðstefnu í Cannes líkt og sjá má á þessari mynd.Ætluðu að gera sjónvarpsþætti byggða á QuizUp Í lok september á síðasta ári var greint frá því að ein stærsta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, NBC, hyggðist framleiða 10 þátta sjónvarpsseríu sem byggir á Quiz Up. Í janúar á þessu ári var tilkynnt um að tölvuleikjaframleiðandinn Glu Mobile Inc, sem sérhæfir sig í að framleiða leiki fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, ætlaði að fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 7,5 milljónir bandaríkjadala og að fyrirtækin myndu sameinast innan 15 mánaða. Í kjölfarið var ráðist í endurskipulagningu á fyrirtækinu. Stöðugildum hjá Plain Vanilla var fækkað um fjórtán í janúar síðastliðnum en stöðugildin höfðu verið um áttatíu talsins þegar mest var. Í apríl var síðan 27 manns sagt upp. Á nokkrum mánuðum höfðu því fjörutíu manns misst vinnuna hjá Plain Vanilla. Í apríl 2016 var greint frá því að fjárfest hefði verið í Plain Vanilla fyrir um fimm milljarða króna frá stofnun þess. Þá stefndi fyrirtækið að því að skila hagnaði í fyrsta sinn í lok þessa árs. Fyrirtækið sendi svo frá sér tilkynningu á hádegi í dag þess efnis að skrifstofu þess í Reykjavík yrði lokað. Öllum 36 starfsmönnum fyrirtækisins verður sagt upp. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að NBC hætti við framleiðslu á þáttum byggðum á leiknum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Plain Vanilla muni halda QuizUp gangandi áfram og að leitað verði leiða til að þróun leiksins geti haldið áfram þrátt fyrir að ekki verði af sjónvarpsþættinum og þrátt fyrir lokun skrifstofunnar hér á landi.Þorsteinn mun sitja fyrir svörum í fréttatíma Stöðvar 2 í beinni útsendingu í kvöld klukkan 19:10.Hér að neðan má sjá tímalínu þar sem farið er yfir sögu Plain Vanilla. Tengdar fréttir Fækkun um 40 á einu ári hjá Plain Vanilla: Fyrirtækið tók meðvitað mikla áhættu Lektor í nýsköpun og viðskiptaþróun segir of mikið í lagt að líta á niðurskurð á Plain Vanilla sem einhverjar ófarir. 29. apríl 2016 15:18 Fimm milljarðar króna í Plain Vanilla frá 2011 Gríðarleg gróska ríkir hjá leikjaframleiðendum á Íslandi. Forstjóri Plain Vanilla segir tíðarandabreytingu í fjárfestingaumhverfinu í Kísildal; meiri áhersla sé nú lögð á tekjur og hagnað. 9. apríl 2016 07:00 Öllum starfsmönnum Plain Vanilla sagt upp Loka skrifstofu sinni hér á landi og öllum 36 starfsmönnum sagt upp störfum. Þetta gerist í kjölfar ákvörðunar NBC að framleiða ekki sjónvarpsþátt byggðan á spurningaleiknum QuizUp. 31. ágúst 2016 11:56 Mest lesið Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Viðskipti innlent Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf
Fækkun um 40 á einu ári hjá Plain Vanilla: Fyrirtækið tók meðvitað mikla áhættu Lektor í nýsköpun og viðskiptaþróun segir of mikið í lagt að líta á niðurskurð á Plain Vanilla sem einhverjar ófarir. 29. apríl 2016 15:18
Fimm milljarðar króna í Plain Vanilla frá 2011 Gríðarleg gróska ríkir hjá leikjaframleiðendum á Íslandi. Forstjóri Plain Vanilla segir tíðarandabreytingu í fjárfestingaumhverfinu í Kísildal; meiri áhersla sé nú lögð á tekjur og hagnað. 9. apríl 2016 07:00
Öllum starfsmönnum Plain Vanilla sagt upp Loka skrifstofu sinni hér á landi og öllum 36 starfsmönnum sagt upp störfum. Þetta gerist í kjölfar ákvörðunar NBC að framleiða ekki sjónvarpsþátt byggðan á spurningaleiknum QuizUp. 31. ágúst 2016 11:56