Skila viðskiptavinum ólöglegum tollum með nautalundum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. ágúst 2016 07:00 Hagkaup selur nú erlendar nautalundir á lægra verði en ella þar sem Hæstiréttur dæmdi ríkið til að endurgreiða ólöglega innflutningstolla. Bónus hefur selt kjúklinga á lægra verði undir sömu formerkjum. Vísir/hanna „
Við munum halda þessu áfram,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, sem um þessar mundir er að koma yfir 400 milljóna króna tollaendurgreiðslu frá ríkinu í hendur viðskiptavina. Í verslunum Hagkaups má nú sjá skilti þar sem kynnt er betra verð vegna endurgreiðslu ólöglegra gjalda. Er þar verið að auglýsa erlendar nautalundir. Forsöguna má rekja til dóms Hæstaréttar frá í febrúar vegna tolla af innfluttum landbúnaðarvörum. Hagar höfðuðu mál gegn ríkinu þar sem fyrirtækið taldi útboð á svokölluðum frítöllum vera ígildi skattlagningar. Högum var dæmd 245 milljóna króna endurgreiðsla sem varð yfir 400 milljónir króna að sögn Finns Árnasonar þar sem ríkið hélt áfram að innheimta gjöldin eftir að málið var höfðað. Finnur segir að þótt að í gildi hafi verið samningar um fríkvóta þar sem gert sé ráð fyrir að landbúnaðarvara sé flutt til landsins á lægri gjöldum heldur en „þessum venjulegu ofurtollum“ þá hafi yfirvöld ávalt reynt að koma í veg fyrir að það skilaði sér á lægra verði til neytenda. „Við fórum í mál þar sem við töldum þetta í rauninni ólöglega skattheimtu og unnum það mál í Hæstarétti. Þá gáfum við það út og höfum kynnt ítrekað að við myndum skila þessum upphæðum til okkar viðskiptavina þar sem gjaldtakan hafi verið ólögleg,“ segir Finnur. Auk þess sem nú eru boðnar nautalundir á niðursettu verði hefur Bónus, sem einnig er í eigu Haga, í nokkra mánuði selt frosna kjúklinga og kjúklingarbringur á lægra verði af sömu ástæðu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira