Glamour

Skreytum okkur með skartgripum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Við elskum skartgripi - enda eitt af því sem stenst tímans tönn og fer frekar eftir persónulegum stíl og smekk hvers og eins en tískunnar straumum og stefnum. 

Það er alltaf gaman að sjá hvernig fólk raðar á sig skartgripum, sérstaklega hringum og armböndum. Hvort sem þú ert týpan sem velur mínimalísku leiðina eða velur frekar stærri og fleiri skartgripi skaltu skoða þessar myndir til að fá innblástur. Kosturinn við skartgripi er maður getur alltaf á sig gulli eða silfri bætt. 






×