Innlent

Ólafur Ragnar í gegnum linsu Gunnars V. Andréssonar

Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins, hefur fylgt Ólafi Ragnari Grímssyni eftir síðan hann hóf þátttöku í stjórnmálum.

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins, hefur fylgt Ólafi Ragnari Grímssyni eftir síðan hann hóf þátttöku í stjórnmálum.

Nú þegar forsetatíð Ólafs er á enda, er tilvalið að rifja upp feril hans og líf í myndum. Gunnar lýsir Ólafi sem hliðhollum fjölmiðlum, enda sjálfur gamall blaðamaður og leiðin hafi verið greið að því sem var að gerast hverju sinni. Það hafi gustað um Bessastaði í forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar.

Hér fyrir neðan má sjá safn mynda úr lífi og ferli Ólafs Ragnars og lýsir Gunnar þeim og sögunum á bak við þær.





Allt tekur enda


Viðburðarrík tíð Ólafs Ragnars Grímssonar er nú á enda. Ekki er hægt að segja að alltaf hafi verið logn á Bessastöðum - raunar hafa fjölmiðlamenn aldrei komist í jafn viðburðarríka forsetatíð í sögu lýðveldisins. 





Ferðalög um landið


Þessi mynd var tekin á Bakkafirði í september 1999, í einum af þeim mörgu ferðum sem Ólafur lagði í út á land til þess að hitta menn við leik og störf.





Óvænt útspil


Ólafur tók umdeildar ákvarðanir í gegnum tíðina. Hann breytti og mótaði embætti forseta eftir eigin höfði. Hér sést hann á blaðamannafundi þar sem hann tilkynnti að hann hafi í hyggju að hafna fjölmiðlalögunum svokölluðu, árið 2004.





Forseti í útivist


Þó Ólafur hafi aldrei verið opinber afreksmaður í íþróttum var hann mjög agaður í viðhalda kroppnum með göngu, hlaupi og ýmiss konar trimmi. Þá sást oft til hans á skíðum og í annarri útvist.





Fjölskyldumaðurinn


Ólafur í faðmi fjölskyldu sinnar, Guðrúnar Tinnu,  Svanhildar Döllu og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur í aðdraganda forsetaframboðs. Peysan sem Ólafur klæddist var prjónuð af Guðrúnu Katrínu. Andlát forsetafrúarinnar tók mjög á fjölskylduna og þjóðin syrgði með.





Kosningasigri fagnað


Þegar úrslit forsteakosninganna 1996 lágu fyrir á kosninganótt tók Gunnar þessa mynd af hjónunum. Það má segja um Guðrúnu Katrínu, að hún var ekki síður sigurvegari kosninganna heldur en Ólafur - stórglæsileg kona sem af geislaði.





Stórkostleg ástarsaga


Ólafur féll af hestbaki í Landsveit  Hann hafði skömmu áður beðið um tilfinningalegt svigrúm til að vera í tygjum við Dorrit. Gunnar brunaði austur í von um að fá að vera í nálægð við þessa forvitnilegu nýjustu tengdadóttur Íslands og var boðið með í túrinn. Hann endaði eins og frægt varð og Dorrit Moussaieff stimplaði sig inn í íslenska þjóðarsál.





Tár á hvarmi


Dorrit táraðist við fall Ólafs af hestinum í Landssveit og var þessi stund mjög tilfinningaþrungin.



Axlarbrotinn á spítalanum

Dorrit fylgdi Ólafi með þyrlu til Reykjavíkur, sem sótti hann axlarbrotinn í Landssveit. Búið var um brotið í Reykjavík.



Trúlofuð og síðar gift

Ári eftir hestaferðina trúlofuðu Dorrit og Ólafur sig og nokkru síðar voru þau gift.



Staðfastur

Þingmaðurinn Ólafur á framboðsfundi í Miklagarði 1988. Gunnar lýsir Ólafi sem mjög kjörkuðum manni í pólítískum slag. Hann hafi aldrei sett sig úr færi við að tala sínu máli.



Tvíhnepptur

Ólafur var aðalsprautan í Félagi ungra framsóknarmanna. Á myndinni er hann að tala fyrir stjórnarskrá - sem var mikið áhugamál hans og félagsins.  Myndin er tekin 1968  á tímum blómabarna - en hann var uppstrílaður í tvíhnepptum jakkafötum að hætti enskra lávarða.

Lifrarbandalagið

Þetta var í aðdraganda kosninga, 1988, um haustið. Þá var ríkisstjórn í upppnámi og stefndi í kosningar. Þeir A-flokkamennirnir Ólafur og Jón Baldvin Hannibalsson að ráða ráðum sínum í kvöldmat hjá eiginkonu Jóns, Bryndísi Schram, þar sem hún bauð upp á kálfalifur. Úr varð Lifrarbandalagið.



Fyrstu fjárlögin

Ólafur með fyrsta fjárlagafurmvarpið, fyrir árið 1989, sem hann bar ábyrgð á í tíð sinni sem fjármálaráðherra. Kampakátur.



Á Jan Mayen

Ferð Vísis til Jan Mayen í ágúst 1979. Ólafur ræðir við Ingvar Gíslason, fyrrum menntamálaráðherra. Þarna fóru þeir í boði Vísis til Jan Mayen að skoða staðarhætti. Umræðan í samfélaginu snerist mikið um að Íslendingar  ættu kannski tilkall til Jan Mayens og voru að semja við Norðmenn um landgrunnið í kringum eyjuna.








×