Fengu styrk að verðmæti 1,1 milljarður fyrir verkefnið VIRUS-X Svavar Hávarðsson skrifar 1. júní 2016 07:00 Íslensk hverasvæði eru sérstaklega til skoðunar í verkefninu. vísir/gva
Íslenska líftæknifyrirtækið Prokazyme, Matís, og 13 erlendir háskólar, stofnanir og fyrirtæki hafa hlotið styrk að verðmæti átta milljónir evra [1,1 milljarður íslenskra króna] úr sjóði Horizon 2020, 8. rannsóknaáætlun Evrópu, vegna rannsóknaverkefnisins VIRUS-X. Verkefnið miðar að rannsókn á erfðamengjum og genaafurðum í veirum sem finnast í náttúrulegum vistkerfum með áherslu á vistkerfi hitakærra örvera í íslenskum hverum, eins og kemur fram í frétt frá Matís. Þar segir líka að samstarfsaðilarnir skipti með sér fjárframlaginu samkvæmt verk- og kostnaðaráætlun. Verkefnið er til fjögurra ára og því stýrir Arnþór Ævarsson, framkvæmdastjóri Prokazyme. Matís er stærsti framkvæmdaaðilinn af 15 rannsóknastofnunum sem taka þátt. Grundvallarmarkmið VIRUS-X er að einangra erfðaefni hitakærra veira beint úr náttúrulegum sýnum. Það er gert til að raðgreina erfðamengi þeirra, bera kennsl á áhugaverð gen og framleiða viðkomandi genaafurðir, fyrst og fremst ensím, til frekari skoðunar og hagnýtingar. Einkum er sóst eftir ensímum sem eru virk á erfðaefni og aðrar kjarnsýrur svo sem DNA og RNA og nýtast sem verkfæri þeirra aðila sem eru að vinna við raðgreiningu og annarri vinnu með erfðaefni á þúsundum rannsóknastofa um allan heim. Í VIRUS-X verkefninu verður einnig leitast við að skoða samspil örvera og veira í náttúrunni og fá betri skilning á viðkomandi vistkerfum svo sem á jarðhitasvæðum á landgrunni Noregs og í hverum á völdum jarðhitasvæðum á Íslandi. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Sjá meira