Gagnrýna að ekki verði hægt að kjósa í Seljahverfi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. maí 2016 17:29 Íbúum í Seljahverfi stendur ekki til boða að sækja kjörstað í hverfinu í júní. vísir/valli
Íbúum í Seljahverfi mun ekki standa til boða að sækja kjörstað í hverfinu fyrir forsetakosningarnar í júní. Ástæðan eru framkvæmdir í Ölduselsskóla og verður kjörstaðurinn því færður í íþróttamiðstöðina Austurbergi. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna þessa ákvörðun og segja Seljaskóla besta kostinn í stöðunni.Áratugalöng hefð „Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna kjósi að vísa frá tillögu Sjálfstæðisflokksins um að íbúum Seljahverfis verði gefinn kostur á því að sækja kjörstað í hverfinu líkt og áratugalöng hefð er fyrir,“ segir í bókun Sjálfstæðisflokksins. Þá segir að þegar lagt hafi verið til að þess í stað yrði kosið í Seljaskóla hafi þær upplýsingar verið gefnar að það væri ómögulegt. Þær upplýsingar hafi komið borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokksins í opna skjöldu. „Nánari athugun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins eftir fundinn leiddi í ljós að ekki hafi verið haft samband við forráðamenn í Seljaskóla í því skyni að kanna hvort unnt yrði að kjósa þar í stað Ölduselsskóla.“Kjörstaður í Ölduselsskóla í næstu kosningum Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja jafnframt ólíklegt að framkvæmdir í Ölduselsskóla verði svo umfangsmiklar að þær útiloki skólann sem kjörstað við forsetakosningarnar. „Niðurstaðan er sú að íbúum Seljahverfis verður ekki gert kleift að sækja kjörstað í hverfinu við forsetakosningarnar 25. júní nk. eins og áratugalöng hefð er fyrir,“ segir þeir í bókuninni. Borgarráðsfulltrúar meirihlutans segja í bókun sinni að erfitt verði að tryggja öryggi kjósenda og framkvæmd kosninganna í Ölduselsskóla. Íþróttamiðstöðin Austurbergi sé heppilegust þar sem aðstæður fyrir kjósendur og framkvæmd kosninganna séu framúrskarandi. Stefnt sé að því að kjörstaður verði á ný í Ölduselsskóla strax í næstu kosningum að framkvæmdum loknum.
Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira