Skuldir sveitarfélaga hækka milli ára sæunn gísladóttir skrifar 2. maí 2016 07:00 Reykjanesbær er það sveitarfélag sem er með hæstu skuld á íbúa af stærstu fimm sveitarfélögunum.
Skuldir fimm stærstu sveitarfélaga landsins (A og B hluta) fóru vaxandi milli ára og námu rúmlega fjögur hundruð og fimmtíu milljörðum króna í lok árs 2015. Reykjavíkurborg skuldar tvo þriðju upphæðarinnar, eða 301,6 milljarða króna. Skuldirnar hækkuðu um tæplega tuttugu milljarða milli ára. Skuldahlutfall sveitarfélaganna, skuldir deilt með rekstrartekjum, drógust þó saman í öllum sveitarfélögunum. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir skuldastöðuna vera áhyggjuefni.Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin almennt var að vinna í skuldastöðu sinni.Fréttablaðið/Daníel„Okkar niðurstaða var sú að sveitarfélög eru að vinna í skuldastöðum sínum, en það eru undantekningar og það er auðvitað áhyggjuefni,“ segir Halldór. Hann bendir á að Reykjavíkurborg eigi stóran hluta á hækkun skulda milli ára, en skuldir Reykjavíkurborgar hækkuðu um fjórtán milljarða. „Spár fyrir 2016 eru samt mun bjartsýnni en útkoman árið 2015, það er okkar niðurstaða að þetta fari batnandi,“ segir Halldór. Skuldir á hvern íbúa námu í árslok á bilinu 1,23 milljónir til 2,86 milljónir króna. Skuldir á íbúa voru lægstar í Kópavogi en hæstar í Reykjanesbæ. Skuldir á íbúa jukust í Reykjavík, á Akureyri og í Reykjanesbæ. Rekstrarniðurstaða versnaði hjá Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík milli ára, en batnaði hjá Reykjanesbæ og Akureyrarbæ. Reykjavík er það sveitarfélag sem á mest eigið fé, eða sem nemur 224 milljörðum króna. Eigið fé er minnst hjá Reykjanesbæ og nemur 6,5 milljörðum króna. Eigið fé dróst saman hjá öllum sveitarfélögum nema Akureyri og Reykjavík milli ára. Heildareignir eru langmestar hjá Reykjavíkurborg. Heildareignir jukust hjá öllum sveitarfélögum nema Kópavogi þar sem þær drógust saman um 100 milljónir króna milli ára.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Sjá meira