Hörður hættur hjá Stjórnstöð ferðamála og staðan auglýst til umsóknar Birgir Olgeirsson skrifar 3. maí 2016 13:23 Hörður Þórhallsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála. Vísir/Valli
Hörður Þórhallsson er hættur sem framkvæmdastjóri Stjórnstöðva ferðamála og verður starf framkvæmdastjóra auglýst laust til umsóknar á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins þar sem greint er frá því að stjórnstöðinni er ætlað að starfa til ársins 2020 og að Hörður hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri tímabundið til sex mánaða til að koma verkefninu af stað en hverfi nú til annarra starfa. Ráðningar Harðar í starf framkvæmdastjóra Stjórnstöðvar ferðamála vakti mikla athygli þegar hún var tilkynnt í október síðastliðnum. Staðan var ekki auglýst þar sem ráðningin var tímabundin til sex mánaða en ýmsir héldu því fram að Hörður hefði fengið þetta starf vegna tengsla hans við Sjálfstæðisflokkinn. Hörður sagði í samtali við Vísi í október í fyrra að honum þætti sú umræða dapurleg og verið væri að gera hann tortryggilegan til að koma höggi á aðra.Sjá einnig: „Mér finnst líklegt að ég sé skráður í Sjálfstæðisflokkinn“ Í tilkynningunni frá ráðuneytinu segir að íslenska ríkið og Samtök ferðaþjónustunnar hafi í dag formlega stofnað sérstakt sameignarfélag utan um rekstur Stjórnstöðvar ferðamála. Er nafn þess Rekstrarfélag Stjórnstöðvar ferðamála og er það í 50% eigu ríkissjóðs og 50% í eigu Samtaka ferðaþjónustunnar. Er Stjórnstöð ferðamála sögð samráðsvettvangur, skipaður af forsætisráðherra í kjölfar þess að samkomulag var undirritað þann 6. október síðastliðinn milli ríkisstjórnar Íslands, Samtaka ferðaþjónustunnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um eflingu íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2020. Stjórnstöð ferðamála tekur þó ekki með neinum hætti yfir ábyrgð og skyldur stjórnvalda eða hagsmunasamtaka greinarinnar. Tilgangur hins nýstofnaða félags er að halda utan um starfsmannamál og almennan rekstur Stjórnstöðvar ferðamála. Starfsmenn félagsins skulu sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin af Stjórnstöð ferðamála í samræmi við Vegvísi í ferðaþjónustu sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Samtök ferðaþjónustunnar gáfu út í október 2015.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Sjá meira