Alda Dís heldur í tónleikaferð um landið Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 9. maí 2016 09:15 Alda Dís ásamt þeim Guðmundi Reyni og Aroni. vísir/vilhelm „
Að taka þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins var virkilega skemmtilegt og krefjandi verkefni, ég gerði mér enga grein fyrir því hversu mikil vinna fer í það að búa til 3 mínútna atriði í kringum eitt lag, ég varð hálf heltekin af verkefninu og hugsaði um lítið annað. Ferlið var líka ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt, ég kynntist alveg helling af frábæru fólki sem kemur að keppninni,“ segir Alda Dís Arnardóttir, 22 ára söngkona úr Snæfellsbæ, en hún hafnaði í öðru sæti í úrslitum Söngvakeppni sjónvarpsins. Mikil vinna er lögð í atriðin sem fram koma í söngvakeppni sjónvarpsins, og þarf hver og einn keppandi að leggja fram mikla vinnu til að atriðin verði sem flottust. Alda Dís þótti vera mjög líkleg til sigurs í keppninni í ár, en laut þó í lægra haldi fyrir atriði Gretu Salóme sem stígur á svið í Stokkhólmi 10. maí næstkomandi. „Hefði ég unnið söngvakeppni sjónvarpsins væri ég stödd í Stokkhólmi núna að fara á stíga á svið eftir nokkra daga, það er auðvitað frekar skrítið að hugsa til þess. Fyrstu klukkutímana eftir að úrslitin voru kynnt var ég með kökkinn í hálsinum en það leið auðvitað hjá. Ég lærði mjög mikið, sem ég kem til með að nýta mér næst þegar ég tek þátt,“ segir Alda Dís. Hún situr þó ekki heima aðgerðalaus, en hún skellti sér í hringferð um landið sem hófst með tónleikum á Höfn í Hornafirði síðastliðinn föstudag. „Ég verð á ferð og flugi um landið næstu vikurnar ásamt þeim Guðmundi Reyni Gunnarssyni og Aroni Steinþórssyni. Guðmundur, eða Mummi eins og hann er oftast kallaður, er píanóleikari og tók þátt í Ísland Got Talent í ár. Hann komst í undanúrslitin þar sem hann stóð sig einstaklega vel. Mummi gaf út sína fyrstu sólóplötu, Various Times in Johnny’s Life, árið 2010. Aron er söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Puffin Island. Hljómsveitin, sem er indí/rokkhljómsveit, var stofnuð 2015 og og hefur sent frá sér lög sem hafa náð góðum vinsældum en fyrsta plata hljómsveitarinnar mun koma út í sumar „Þetta er frábært ævintýri og ég er alveg virkilega spennt, þar sem ég hef aldrei farið hringinn sjálf,“ segir Alda Dís, en hópurinn mun koma fram á fimmtán stöðum víðsvegar um landið. Framundan er nóg um að vera hjá Öldu Dís en ásamt því að hafa gefið út nýtt lag í vikunni, er hún farin að semja tónlist með enskum textum. „Nýjasta lagið mitt, Skilið við allt, kom út í vikunni. Það er frekar ólíkt öðrum lögum mínum og það er smá sumar í því. Svo reikna klárlega með að horfa á Eurovision og styðja við bakið á Gretu Salóme, hún hefur staðið sig ótrúlega vel og er fagmaður fram í fingur góma. Það er enginn vafi á því að hún verður landi og þjóð til sóma þegar hún stígur á sviðið í Stokkhólmi,“ segir Alda Dís glöð og bjartsýn.
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Sjá meira