Viðskiptastjóra vikið úr starfi hjá Arion Sveinn Arnarsson skrifar 25. apríl 2016 07:00 Viðskiptastjóri Arion banki á Akureyri er jafnvel talinn hafa valdi bankanum fjárhagstjóni. vísir/sveinn
Viðskiptastjóra Arion banka á Akureyri var gert að hætta störfum strax fyrr í þessum mánuði vegna gruns um saknæmt athæfi hans í störfum hjá bankanum. Ekki er loku fyrir það skotið að málið rati til lögreglu að lokinni innanhússrannsókn í bankanum. Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, vill lítið tjá sig um málið en staðfestir þó að starfsmaður bankans á Akureyri sé talinn hafa gerst brotlegur við reglur bankans og hafi verið látinn fara um leið og upp komst um málið. „Ég get staðfest það að málið er til skoðunar innan bankans og varðar brot á reglum sem geta valdið bankanum fjárhagstjóni, að öðru leyti get ég ekki rætt um málið á þessari stundu,“ segir Haraldur Guðni.Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka.Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins átti viðskiptastjórinn sjálfur í ýmsum viðskiptum og nýtti sér stöðu sína að því leyti. Þannig gat skapast hætta á tjóni fyrir bankann því ekki var tryggt að hagsmunir bankans væru hafðir í öndvegi þegar hans eigin viðskipti voru undir. Málið er litið alvarlegum augum innan bankans en það hefur ekki verið tilkynnt lögreglu og er í skoðun innan bankans eins og fyrr segir. Komi hins vegar í ljós að um saknæmt athæfi hafi verið að ræða er líklegt að málið fari til lögregluyfirvalda til frekari úrvinnslu. Viðskiptastjórinn fyrrverandi vill ekki tjá um málið við Fréttablaðið en áréttar að hann telji sig engar reglur hafa brotið. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. apríl
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Viðskipti innlent SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Viðskipti innlent Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Viðskipti innlent Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni Atvinnulíf SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Viðskipti innlent Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu Viðskipti innlent Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Afi var alltaf með Malt í gleri og Prince Póló á skrifstofunni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Boða komu HBO Max til landsins á ný Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Umsóknir í HA aldrei verið fleiri Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Sjá meira