Harry Bretaprins kom til bjargar í Lundúnamaraþoninu Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 26. apríl 2016 09:00 Dagný Fjóla Ómarsdóttir rétt eftir að hún kom í mark í Lundúnamaraþoninu sem haldið var um síðustu helgi.
Þetta var alveg ótrúlega mikil upplifun og mikil lífsreynsla – það var lifandi tónlist út um allt og mikil stemning. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hljóp heilt maraþon, hlaupið gekk ótrúlega vel, maður fyllist ákveðnu stolti og á erfitt með að hætta að brosa,“ segir Dagný Fjóla Ómarsdóttir, markaðs- og alþjóðaviðskiptafræðingur en hún tók þátt í Lundúnamaraþoninu, sem fram fór um síðastliðna helgi. Hlaupið fór fyrst fram árið 1981 og er eitt fjölmennasta maraþonhlaup heims ef tekið er tillit til þeirra sem luku hlaupinu en rúmlega 39.000 manns voru skráðir til þátttöku í ár. Um hálf milljón manns fylgist með keppninni en nú þegar hafa safnast rúmlega 3,8 milljarðar í góðgerðamál.Harry Bretaprins kom til hjálpar. Nordicphotos/Getty.„Það var þvílíkt mikið um að vera í hlaupinu, lifandi tónlistaratriði ásamt fullt af alls konar karakterum sem hlupu í búningum. Fyrrverandi Ólympíufari hrundi niður af sviðinu en það var enginn annar en Harry prins sem kom henni til hjálpar, það hefði verið gaman að sjá hann. Svo var maður sem tók sér góða stund í að biðja konunnar sinnar í miðju hlaupinu,“ segir Dagný Fjóla og bætir við að þetta hafi verið einstök upplifun. Það er óhætt að segja að undirbúningur fyrir heilt maraþon sé mikill og fólk þar að fylgja stífu prógrammi nokkrum vikum fyrir hlaupin „Ég fylgdi prógrammi sem heitir Runkeeper, það hjálpaði mér mjög mjög. Ég hef aldrei áður hlaupið svona langa vegalengd, þar sem ekki er mælt með því að hlaupa heilt maraþon í undirbúningstímabilinu. Maður veit nánast ekki við hverju er að búast og hvort maður raunverulega geti þetta,“ segir Dagný Fjóla. Dauðsfall varð í hlaupinu þegar herforingi frá Skotlandi fékk hjartaáfall er hann átti um fimm kílómetra eftir í mark, hann var fluttur á spítala þar sem hann lést. „Það var alveg ótrúlega sorglegt að heyra þessar fréttum rétt eftir að ég kom í mark. Vinir hans ætla að ganga þá leið sem hann átti eftir af hlaupinu, „til að ljúka því sem hann hóf“,“ segir Dagný að lokum.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“