Sýningin snýst um að búa til tónlist Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 16. apríl 2016 09:15 Stomp-hópurinn ferðast um heiminn en hann er væntanlegur til Íslands í júní. Mynd/Stomp „
Ég hef tekið þátt í sýningunni í átta ár og óhætt að segja að ég hef elskað hverja einustu mínútu,“ segir Phil Batchelor einn af listamönnum hópsins Stomp sem væntanlegur er til Íslands í júní, en um er að ræða þrjár sýningar fyrir alla aldurshópa laugardaginn 11. júní og sunnudaginn 12. júní í Eldborgarsal Hörpu. Stomp sameinar leikhús, dans og hryntónlist en flytjendur nota stígvél, ruslafötur, sópa, vaska og margt fleira til að búa til stórkostlegan takt sem hrifið hefur áhorfendur víðs vegar um heiminn. „Uppruna Stomps má rekja til þeirra Lukes Cresswell og Steves McNicholas. Luck er tónlistarmaður sem hefur átt langan feril sem trommari og Steve hefur hins vegar leikhúsbakgrunn. Sameiginlegir kraftar þeirra tveggja er galdurinn að velgengni sýningarinnar,“ segir Phil. Breska sýningin Stomp hefur slegið rækilega í gegn og farið sigurför um heiminn. En geta allir æft Stomp? „Við mælum með að allir taki upp hluti í kringum sig og prófi að búa til tónlist. Sýningin snýst um að búa til tónlist með hlutum sem eru í kringum okkur í daglegu lífi, það eru okkar hljóðfæri. Öllum er velkomið að prófa sig áfram með því,“ segir Phil léttur í lund og bætir við að forsenda þess að geta tekið þátt í sýningunni sé líklega sú, að maður verði að hafa góða tilfinningu fyrir hrynjandinni í tónlist. Phil er trommari og hefur starfað við það í fjölda ára og tekið þátt í Stomp-sýningunni í átta ár en hópurinn hefur ferðast um heiminn með sýninguna og fengið frábær viðbrögð áhorfenda. „Það eru algjör forréttindi að mæta í vinnuna og fá að skapa tónlist alla daga, það er ótrúlega gefandi að spila fyrir framan fullan sal af fólki og sjá gleðina sem sýningin veitir fólki,“ segir Phil. Síðast þegar hópurinn steig á svið árið 2013 hér á landi fylltust fjórar sýningar í Eldborgarsal Hörpu. En kemur sýningin til með að vera eitthvað öðruvísi í ár? „Við höfum tekið inn frábæra listamenn í hópinn svo sýningin er með nýju sniði. Það sem er svo frábært við Stomp er að hver og einn listamaður kemur með sinn eigin persónuleika í sýninguna sem gerir það að verkum að engar tvær sýningar verða eins. Að miklu leyti byggir sýningin á ákveðinni rútínu sem við fylgjum en við höfum talsvert pláss til að spinna og búa til eigin sóló. Sýningin er mjög lifandi og gefur okkur þess vegna frelsi til að ná til áhorfenda í salnum. Með því gerum við áhorfendur að þátttakendum í sýningunni sem er mjög skemmtilegt,“ segir Phil. Stomp fagnar 25 ára afmæli sínu í ár en nýlega var sýningin sett upp í London Palladium. Sem stendur er hópurinn í New York og mun hann túra um Bandaríkin á næstunni ásamt því að ferðast um heiminn. „Við erum ánægð með hvað sýningunni okkar er tekið vel. Það er virkilega skemmtilegt að ferðast um heiminn og skoða ólíka menningu og staði. Ísland er alveg ótrúlega fallegur staður. Seinast þegar ég kom fór ég í vélsleðaferð yfir jökulinn, skoðaði landslagið og fór í Bláa lónið sem var frábært,“ segir Phil spenntur að heimsækja Ísland aftur.
Mest lesið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið Fleiri fréttir Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“