Notaði fyrst dulnefnið Stefán Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 16. apríl 2016 10:45 "Ferillinn hefði getað orðið lengri og öðruvísi ef ég hefði byrjað fyrr,“ segir Kristín. Vísir/Anton Brink „
Nú þyrfti maður að fara að hætta,“ segir Kristín Steinsdóttir rithöfundur glaðlega þegar nýliðið sjötugsafmæli ber á góma. „Allt í kringum mig er fólk að hætta að vinna en það er erfitt fyrir rithöfund í sjálfsmennsku því enginn rekur hann úr vinnunni. Ekki fyrr en hann gefur út bók sem enginn vill lesa, þá er sjálfhætt. Ég á bara alltaf eitthvað eftir sem mér finnst að gaman væri að fást við. Byrjaði líka svo seint.“ Kristín var orðin 41 árs þegar fyrsta bók hennar kom út. „Ég var kennari í fullu starfi, bjó á Akranesi og hafði skrifað mikið fyrir sjálfa mig alveg frá því ég var krakki. Í MA var ég í ritstjórn skólablaðs og skrifaði mikið en hef oft hugsað um það seinni árin að það voru bara strákar sem giltu sem skáldin í skólanum. Eina fagið sem mér þótti reglulega skemmtilegt í menntaskóla var íslenska og sérstaklega var gaman að skrifa ritgerðir en þó að þær væru vel metnar sagði enginn kennari við mig: „Ert þú kannski að spá í að verða blaðamaður?“ eða: „Langar þig ekki að skrifa eitthvað meira?“ Það hugsa ég að væri frekar gert í dag.“ Rithöfundurinn kom upp í Kristínu löngu seinna þegar auglýst var keppni til íslensku barnabókaverðlaunanna á vegum Vöku-Helgafells. Þá sendi hún inn handrit undir dulnefni – og til öryggis hafði hún það karlmannsnafnið Stefán. „Ég var ekki kjarkaðri en svo,“ segir hún. „En ég vann keppnina og þar með kom út bókin Fransbrauð með sultu. Eftir það fór ég að skrifa jafnframt því að kenna, og svo hætti ég að kenna, þá búin að fá vilyrði frá Vöku-Helgafelli um að fá aðra bók útgefna. Úr fyrstu bókinni varð þríleikur og svo var ég óstöðvandi eftir það. Ferillinn hefði samt getað orðið lengri og öðruvísi ef ég hefði byrjað fyrr. Þess vegna finnst mér mikilvægt að vekja fólk til lífsins.“ Í tilefni sjötugsafmælis Kristínar var bókin Engill í Vesturbænum endurútgefin en hún kom fyrst út 2002 og fékk geysigóðar viðtökur bæði hér og erlendis. Fyrir hana hlaut Kristín öll verðlaun sem hægt var að fá fyrir barnabók á Íslandi og líka alls konar viðurkenningar úti í heimi. „Engillinn er sú bók mín sem hefur fengið flestar stjörnur og er komin út á tíu tungumálum,“ segir hún. „Myndirnar hennar Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur styðja líka firna vel við textann.“
Mest lesið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira