Bílar

Nýjasti rafmagnsbíll Tesla rýkur út

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fyrstu Model 3 bílarnir eru væntanlegir til afhendingar í lok árs 2017.
Fyrstu Model 3 bílarnir eru væntanlegir til afhendingar í lok árs 2017.
Aðeins eru tveir sólarhringar frá því að nýjasti rafmagnsbíll Tesla var kynntur opinberlega. Þrátt fyrir það streyma pantanirnar inn af miklum krafti og liggja 232 þúsund pantanir fyrir.

Tesla Model 3 var kynntur af Elon Musk, stofnanda Tesla, á sérstökum viðburði í Los Angeles á fimmtudaginn. Bíllinn er sá ódýrasti úr smiðju framleiðandans fram að þessu og kostar 35 þúsund dollara, jafnvirði 4,3 milljóna íslenskra króna.

Hlutabréf í Tesla hækkuðu mikið í aðdraganda afhjúpunar á Model 3 sem beðið var með mikillar eftirvæntingar. Frá því í febrúar hafa hlutabréf fyrirtækisins hækkað í verði um 60 prósent.

Sjá einnig: Gísli Gíslason var á kynningunni á Tesla Model 3

Musk sjálfur er mjög ánægður með söluna og þegar pantanir voru komnar í 180.000 tísti hann um að fyrirtækið hefði selt bíla fyrir 7,5 milljarða dollara á einum degi.

Sérfræðingar ytra eru þó ekki alveg svo bjartsýnir enda ekki víst að allir þeir sem pöntuðu eintak muni að lokum ganga frá kaupum. Þeim þykir þó mikið koma til sölunnar og segja það ljóst að Tesla hafi selt bíla í gær fyrir fleiri milljarða dollara.

Fyrstu Model 3 bílarnir eru væntanlegir til afhendingar í lok árs 2017 en markmiðið er að framleiða fimm hundruð þúsund eintök á ári þegar framleiðslan er komin vel af stað. Musk segir þó sjálfur að vegna mikillar eftirspurnar þurfi væntanlega að endurskoða áætlanir um framleiðslu.

Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband Tesla Model 3.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×