Horfðu á mennina farast Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. apríl 2016 09:30 „Silagangurinn og vanrækslan kringum slysavarnamál á Íslandi var næstum því glæpsamleg,“ segir Illugi. Vísir/Vilhelm „
Það var algengt á þessum tíma að skip færust með fjölda manns en það sem gerði þetta slys sérstaklega átakanlegt var að fólk horfði á mennina tínast í sjóinn án þess að fá rönd við reist, meðan skipið liðaðist í sundur.“ Þetta segir Illugi Jökulsson um hörmulegt sjóslys þennan mánaðardag árið 1906 þegar fiskiskipið Ingvar RE 100 strandaði í ofsaveðri skammt undan Viðey og 20 manns fórust. Þá sögu ætlar hann að rifja upp í Víkinni sjóminjasafni í dag milli 12.10 og 12.50. „Þetta var á þeim tíma sem útbúnaður skipa var hörmulegur og engar veðurspár að styðjast við. Í þessu veðri lenti fjöldi skipa í vandræðum og tvö fórust við Mýrar með 48 manns. Ingvar RE, sem var þiljað seglskip, varð fyrir áfalli á Faxaflóanum en komst laskaður til Reykjavíkur. Skipstjórinn vonast eftir vari á sundinu milli Viðeyjar og lands en steytir á skeri og yfir skipið ganga hinir ferlegustu sjóir. Skipverjar komast ekki í land, binda sig fasta við skipið en brimið tekur þá smátt og smátt. Bóndinn í Viðey ætlar að ýta báti á flot en er stoppaður því slíkt hefði verið feigðarflan.“ Það sem Illuga finnst einkennilegast er að þrátt fyrir þetta slys, sem svo margir urðu vitni að, liðu þrjátíu ár áður en Slysavarnafélagið var stofnað. „Silagangurinn og vanrækslan kringum slysavarnamál á Íslandi var næstum því glæpsamleg,“ segir hann. „Á þessum tíma var búið að finna upp línubyssur í útlöndum en enginn hafði haft vit á að kaupa þær næstu þrjátíu árin, þó öllum ætti að vera ljóst að með þeim hefði verið hægt að bjarga þessum mönnum.“ Allir eru velkomnir á hádegisfyrirlesturinn hjá Illuga og aðgangur er frír.
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur Fundu ástina á Domino's Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“