Yfirtaka íslenska ríkisins á Íslandsbanka heimiluð Sæunn Gísladóttir skrifar 11. mars 2016 13:18 Eftir yfirtöku Ríkissjóðs Íslands á hlut Glitnis hf. í Íslandsbanka hf. fer Bankasýsla ríkisins með allan eignarhlut í bankanum. vísir/vilhelm
Með ákvörðun sem birt er í dag hefur Samkeppniseftirlitið heimilað yfirtöku íslenska ríkisins á Íslandsbanka, með skilyrðum sem aðilar málsins hafa sæst á að fylgja. Eftir yfirtöku Ríkissjóðs Íslands á hlut Glitnis hf. í Íslandsbanka hf. fer Bankasýsla ríkisins með allan eignarhlut í bankanum, jafnframt því sem Bankasýslan fer með 98,2 prósent eignarhlut í Landsbankanum, 13 prósent hlut í Arion banka, 49,5 prósent hlut í Sparisjóði Austurlands. Yfirtaka ríkissjóðs á Íslandsbanka leiðir til þess að 65-70 prósent af innlánastarfsemi í landinu verður undir yfirráðum sama aðila, auk þess sem Íslandsbanki og Landsbankinn hafa saman mjög sterka stöðu á fleiri mikilvægðum undirmörkuðum fjármálaþjónustu. Yfirráð sama aðila yfir tveimur keppinautum með svo sterka stöðu eru að öllu jöfnu til þess fallin að raska samkeppni með alvarlegum hætti. Í hinu sameiginlega eignarhaldi felst hætta á því að starfsemi bankanna verði samræmd, beint eða óbeint, með skaðlegum hætti fyrir viðskiptavini og samfélagið. Aðilar málsins eru meðvitaðir um þessa hættu. Þannig hafa stjórnvöld engin áform um að sameina eða samþætta starfsemi keppinautanna tveggja, Íslandsbanka og Landsbankans, hvorki með samstarfi þeirra á milli eða með því að renna þeim saman. Þá liggur einnig fyrir að stjórnvöld áforma sölu á eignarhlutum í viðskiptabönkum í eigu ríkisins, a.m.k. að hluta. Jafnframt hafa stjórnvöld nú skuldbundið sig með sátt við Samkeppniseftirlitið til þess að fylgja reglum og grípa til aðgerða sem stuðla að því að bankarnir verði reknir sem sjálfstæðir keppinautar. Viðskiptabankarnir tveir sem verða undir yfirráðum ríkisins hafa einnig skuldbundið sig til að fylgja skilyrðum sem stuðla að hinu sama. Þannig verður gripið til ráðstafana sem ætlað er að koma í veg fyrir að hið sameiginlega eignarhald hafi skaðleg áhrif á samkeppni.
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira