Alþýðusambandið hundrað ára Guðmundur Andri Thorsson skrifar 14. mars 2016 06:00 Það að vera kapítalisti á Íslandi er þægileg innivinna. Þetta er oft hálfgerð áskrift að skyldu-útgjöldum almennings, nokkurs konar tíund, sem tekin er af þeim fátæku og látin renna til þeirra ríku. Dagur kapítalistans íslenska líður við ánægjulegar samverustundir með svonefndum samkeppnisaðilum, þar sem af eindrægni og samhug eru lögð á ráðin um komandi hækkanir, milli þess sem samdar eru nýjar kennitölur og hugsuð upp ný og fyndin nöfn á eignarhaldsfélög.Æfing í ósvífniTilraunir hluthafa til að komast yfir bótasjóði tryggingarfélaganna nú á dögunum, í kjölfar hækkana vegna „bágrar stöðu félaganna“, voru nokkurs konar æfing í ósvífni, tilraun um það hversu langt má ganga án þess að ofbjóða seinþreyttum íslenskum neytendum. Tilraunin leiddi í ljós að það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að bjóða almenningi upp á fráleita eignaupptöku. Hún varð líka til þess að rifja upp fyrir okkur hversu gallað fyrirkomulag er á starfsemi tryggingarfélaga hér á landi, og hversu brýnt er að koma á fót félagslegum rekstri kringum þessi nauðsynlegu útgjöld, þar sem önnur sjónarmið ríktu en þau að skapa hluthöfum sem mestan arð. Þetta minnti okkur á það hversu langt hefur verið gengið hér á landi í þá átt að eftirláta markaðsöflunum alls konar rekstur þar sem samfélagsleg vitund þyrfti að ríkja – og siðferðissjónarmiðum ætti að gera hátt undir höfði. Í rauninni er ámóta viskulegt að reka tryggingarfélög með gróðasjónarmið eigenda að leiðarljósi og að afhenda einkaaðilum ríkissjóð. Þær eru eflaust ýmsar skýringarnar á því hversu náðuga daga íslenskir kapítalistar eiga. Ein þeirra kann að vera sú að samtök launafólks náðu hér ekki jafn miklum pólitískum styrk og í nágrannalöndum okkar, þar sem meira ber á samfélagslegri meðvitund fólks, sem lýsir sér til dæmis í því að ekki er fyrst og fremst litið á leigjendur húsnæðis sem bráð, eins og alsiða er hér á landi.„Upp með dalina?…“Það segir sína sögu að nú þegar Alþýðusambandið og Alþýðuflokkurinn eiga hundrað ára afmæli skuli hinn pólitíski flokkur launafólks ekki vera lengur starfandi, nema að nafninu til. Og staðan orðin þannig á þeim flokki sem átti að sameina jafnaðarmenn hér á landi, Samfylkingunni, að hann verður æ meira Sérfylkingin; íslenskir kjósendur búnir að breyta henni í gamla Alþýðuflokkinn en allt jafnaðarmannafylgið komið á flokk sem fyrst og fremst snýst um andúð á hvers kyns valdi og forsjá; og er þar togast á um hvort sé hægri anarkistaflokkur, að hætti Friedman-feðga, eða vinstri anarkistaflokkur í anda Bakúníns. Upp til hópa segjast Íslendingar vera jafnaðarmenn en sárafáir telja sig krata. Þarna er gerður einhver greinarmunur sem erfitt er að henda reiður á; „krati“ er raunar ekki annað en stytting á „sósíaldemókrata“, alþjóðlegu orði þessarar hreyfingar, og vísar í lýðræðishugsjónina, sem aðskildi einmitt jafnaðarmenn frá kommúnistum, sem aðhyllast alræði. En það er eins og orðið þýði eitthvað allt annað í huga margra; kannski vegna þess spillingarorðs sem lá á Alþýðuflokknum þegar hann var með Sjálfstæðisflokknum í Viðreisnarstjórninni. Næstum eins og orðið „krati“ merki „veifiskati“ eða eitthvað þess háttar. Jón Trausti lét persónu í sögu eftir sig lýsa jafnaðarstefnunni með orðunum „Upp með dalina! Niður með fjöllin!“ sem kann að lýsa nokkuð vel þeim þankagangi að jöfnuður jafngildi allsherjar flatneskju. Þó er það svo að fátt þykir fyndnara hér á landi en hofmóður í krafti auðs og valda, og eru enn sagðar gamansögur af útrásarvíkingunum þegar þeir fóru að reyna að halda sig sem enska lorda í marga ættliði. Íslensk jafnaðarstefna er um leið mikil einstaklingshyggja, þar sem lögð er áhersla á athafnarými hvers og eins, hvort sem viðkomandi vill fá að stofna fyrirtæki, reisa hús sem öllum finnst ljótt eða gefa út lélega plötu. Hér er rík tilfinning fyrir því að sérhver manneskja skapi sig sjálf og megi gera ýmsar misvel útfærðar tilraunir á þeirri vegferð. Við lítum almennt á okkur sem fjöll fremur en dali. Það er ágætt. En við þurfum samt hvert á öðru að halda. Alþýðusambandið er vitnisburður um það hverju samtök launafólks fá áorkað, þegar samtakamættinum er beitt – þau margvíslegu réttindi sem við höfum fengið, þrátt fyrir allt. Fyrir öllum þessum réttindum hefur þurft að berjast og jafnvel berjast lengi – allt frá Vökulögunum á sinni tíð. Verkefni dagsins snúast ekki síst um að koma böndum á starfsemi yfirþjóðlegra fyrirtækja sem stunda starfsmannaleigu og búa fólki sínu stundum þannig aðstæður, að ekki verður kallað annað en þrælahald. Við vitum að hægri flokkarnir telja alla lagasetningu um slík mál vera „íþyngjandi“ en óneitanlega myndi maður vilja óska þess að hinn pólitíski armur alþýðusamtakanna væri öflugri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Andri Thorsson Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar