Glamour

Lagt upp með stórstjörnum.

Ritstjórn skrifar
SS'16 herðferðin hjá tískurisanum Alexander Wang var heldur betur frábrugðin og skemmtileg en hún var mynduð af ljósmyndaranum Steven Klein. 

Í herferðinni má sjá mörg þekkt andlit, bæði af fyrirsætum, tónlistarmönnum og listamönnum. Klein myndaði alls tuttugu og eitt andlit — Hver stjarnan á fætur annarri. Þar má meðal annars sjá söngkonuna Alice Glass, tónlistarmanninn Travi$ Scott, fyrirsæturnar Anna Ewers, Hanne Gaby Odiele, Molly Bair, Binx Walton og Kaia Gerber, en hún er dóttir súperfyrirsætunnar Cindy Crawford.

Steven Klein myndaði herferðina í Manhattan og Brooklyn en það sem gerir herferðina svo einstaka er hvernig Klein nálgast fyrirsæturnar á einlægan hátt. Ljósmyndarinn myndaði fyrirsæturnar bæði heima hjá þeim, á bensínstöðum og í plötubúðum í hverfinu og er niðurstaðan virkilega áhugaverðar og heillandi myndir.



En ljósmyndirnar af herðinni má sjá á Instagram síðu Alexander Wang en einnig var gerð sérstök Instagram síða fyrir herferðina og ber hún nafnið Wangsquad.



Hér að neðan má sjá bæði brot af myndum úr herferðinni og myndband.

Who: @annaewers Where: @hannegabysees & @yawnjohn's apartment, Williamsburg, Brooklyn #WANGSS16

A photo posted by WANGSQUAD (@wangsquad) on






×