Viðskipti innlent

Segir að staða innlendra framleiðenda myndi veikjast

Samúel Karl Ólason skrifar
Innlendir bjórframleiðendur eru nú orðnir sjö talsins og eru bjórtegundir þeirra orðnar hátt í 70.
Innlendir bjórframleiðendur eru nú orðnir sjö talsins og eru bjórtegundir þeirra orðnar hátt í 70. Vísir/ernir
Samtök iðnaðarins segja að yrði áfengisfrumvarpið samþykkt myndi það veikja stöðu innlendra bjórframleiðenda. Þeir eru nú orðnir sjö talsins og eru bjórtegundir þeirra orðnar hátt í 70. Yrði sala áfengs bjórs leyfð í búðum er það mat SI að það myndi styrkja erlend vörumerki og fyrirtæki.

Í tilkynningu frá SI segir að erlendir aðilar hafi forskot vegna heimilda til að auglýsa vörur sínar í fjölmiðlum sem berist hingað til lands. Innlendir framleiðendur hafi ekki sama möguleika.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, segir í tilkynningunni samtökin vilja stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi framleiðenda enda sé það allra hagur að hér dafni blómlegur iðnaðar.

„Við viljum að þeir fjölmörgu gestir sem heimsækja landið eigi þess kost að gæða sér á innlendri framleiðslu. Því er mikilvægt að hugað sé að því að innlendir framleiðendur áfengra drykkja hafi sömu möguleika og erlendir framleiðendur að koma vörum sínum á framfæri,“ segir Almar.

Ekki megi gleyma því að innlend framleiðsla skilji eftir sig meiri virðisauka fyrir samfélagið en innflutningur geri. Almar biðlar til þingmanna að hafa í huga hvaða afleiðingar frumvarpið gæti haft á innlenda framleiðslu.

„Ef um er að ræða vörur sem keppa á frjálsum markaði verður að fylgja því frelsi til að kynna vörurnar. Til að veikja ekki stöðu innlendra framleiðenda er því nauðsynlegt að greina betur áhrifin af þeim lagabreytingum sem felast í frumvarpinu. Við höfum bent allsherjar- og menntamálanefnd á þetta með skýrum hætti og þess vegna kemur það á óvart að málið sé afgreitt úr nefnd án þess að meiri greining fari fram.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×