Verð að vita eitthvað sjálfur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 16. mars 2016 09:45 "Ég byrja á að safna upplýsingum og skoða hvað skiptir máli, hvað verður að koma fram og hvernig ég get matreitt það þannig að það veki athygli og skilji eitthvað eftir í huga fólks,“ segir Ævar Þór. Vísir/Stefán „
Ég er spenntur fyrir þessu nýja starfi en aðallega þó upp með mér yfir að UNICEF skyldi hafa samband við mig“ segir Ævar Þór Benediktsson,“ vel þekktur sem Ævar vísindamaður sem verður talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar í ár. Hann ætlar að hjálpa til við að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og auka skilning þeirra á því hvernig réttindi barna hafa tengingu við daglegt líf þeirra. Ævar kveðst ekkert endilega hafa verið á lausu en ákveðið að búa til tíma fyrir þetta verkefni. „Ég er aðallega að skrifa bækur og gera útvarps- og sjónvarpsþætti og finn bara auka klukkutíma til að geta lagt þessu málefni lið. UNICEF-hreyfingin skiptir miklu máli og þá bara forgangsraðar maður,“ segir hann ákveðinn. „Ég er búinn að vera á nokkrum undirbúningsfundum með starfsfólki UNICEF. Við erum með alls konar hugmyndir í gangi til að finna út hvernig ég nýtist sem best og svo fer boltinn hratt af stað þegar við byrjum.“ Í ár verður sérstök áhersla lögð á Sýrland og Ævar ætlar að miðla til barnanna ýmsum staðreyndum um Sýrland, stríðið og áhrif þess á börn. Þegar hann hefst handa kveðst hann nálgast verkefnið eins og þegar hann er að vinna þættina sína. „Ég byrja á að safna upplýsingum og skoða hvað skiptir máli, hvað verður að koma fram og hvernig ég get matreitt það þannig að það veki athygli og skilji eitthvað eftir í huga fólks.“ En ætlar hann að fara út á mörkina eða bara nota miðlana? „Ég mun nýta allt sem ég get og örugglega leika mér eitthvað með miðlana, þannig náum við flestum.“ Spurður hvort hann verði nokkuð sendur til Sýrlands svarar Ævar: „Sú hugmynd hefur ekki komið upp. En það fylgir þessu verkefni að kafa ofan í málefni þess heimshluta því ef ég ætla að fræða fólk verð ég að vita eitthvað sjálfur og mér er ljúft og skylt að gera mitt besta í þeim efnum.“
Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Valin versti ljósmyndari heims Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira