Nói útskýrir dýrari páskaegg Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2016 18:31 Vísir/Stefán
Páskaegg frá Nóa Síríus hafa hækkað í verði um níu prósent á milli ára. Alþýðusamband Íslands kallaði í vikunni eftir því að verðhækkun á páskaeggjum væri útskýrð. Ljóst væri að eggin væru að hækka í verði á sama tíma og verð á kakóbaunum og sykri lækkaði og gengi krónunnar styrktist. Í tilkynningu frá Nóa Síríus er verðhækkunin útskýrð. Fyrirtækið kaupir ekki kakóbaunir til framleiðslunnar heldur afurðir sem unnar eru úr þeim. Verð á þeim afurðum fer ekki endilega saman við verð kakóbaunarinnar. Þá eru gerðir framvirkir samningar til nokkurra mánaða sem gerir samanburð í tíma torveldari.Kristján Geir Gunnarsson, Framkvæmdastjóri markaðs - og sölusviðs Nóa Síríus.„Þegar ákvörðun er tekin um verð höfum við til hliðsjónar verðþróun á lykilhráefnum og skal upplýst að undanfarið ár hefur verð hækkað á bilinu 4% til 21%. Frá þessu er ein undantekning og það er sykurverð sem hefur lækkað um 3%, en rétt er að geta þess að sykur er ekki sérlega stór liður í kostnaðarverði súkkulaðis,“ segir í tilkynningunni. „Styrking gengis hjálpar auðvitað til, en nær ekki að vega upp kostnaðarhækkanirnar. Þá vegur vinnuaflskostnaður þungt í framleiðslu á páskaeggjum og er ekki annað hægt en að taka þann kostnað með í reikninginn.“ Auk þess segir að laun hafi hækkað umtalsvert á árinu eða um liðlega tólf prósent. Þá sé ógetið um verð á flutningum og ýmsum öðrum kostnaðarliðum sem einnig hafi hækkað. „Samanlagðar kostnaðarhækkanir hafa orðið þess valdandi að Nói Síríus hefur talið óhjákvæmilegt annað en að hækka afurðaverð sitt um sem nemur 9% á einu ári.“
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira