Með Stúdentakjallaranum kom mikil tónlistarflóra Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 3. mars 2016 10:00 Margrét Arnardóttir harmonikkuleikari spilar á háskóladeginum 5. mars næstkomandi. Vísir/Stefán „
Þetta er ótrúlega gaman og mikil hátíð fyrir bæði nemendur og starfsfólk skólanna. Það sem gerir þennan dag skemmtilegan er að það er hægt að skoða allt sem aðrir hafa upp á að bjóða. Svo verður ýmislegt skemmtilegt á dagskrá, til dæmis sýningar hjá Sprengjugenginu, legó-námskeið, námskeið í forritun fyrir börn, salsadans og tónleikar,“ segir Margrét Arnardóttir harmóníkuspilari en hún er að taka þátt í dagskrá háskóladagsins í níunda skipti og finnst það alltaf jafn gaman. Háskóladagurinn veitir framtíðarnemendum einstakt tækifæri til að kynnast því sem í boði er svo auðveldara sé að taka upplýsta ákvörðun um hvaða nám hentar hverjum og einum. „Ég hef tekið þátt í háskóladeginum frá því 2007 þegar ég stofnaði nemandafélagið FLOG. Árið 2009 var ég fengin til að spila á harmóníku, og það er óhætt að segja að eftir það fór boltinn að rúlla. Það hefur myndast einhvers konar hefð að fá mig til að spila á þessum frábæra viðburði og hef ég fengið þann heiður að fylgjast með viðburðinum stækka,“ segir Margrét aðspurð um sína aðkomu að háskóladeginum. Markmið skólanna er að bjóða upp á metnaðarfulla kynningu á öllum mögulegum námsleiðum á Íslandi, sem eru yfir fimm hundruð talsins. Dagskráin fer fram í húsakynnum Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91. „Ég hvet alla til að mæta, bæði þau sem ekki eru búin að ákveða hvað þau ætla að læra og þau sem langar að kíkja á gamlar slóðir. Margt hefur breyst í Háskóla Íslands, sérstaklega eftir að Háskólatorg kom og síðar Stúdentakjallarinn. Með kjallaranum spratt upp mikil tónlistarflóra en Baltabandið Raki ásamt Húsbandi Stútendakjallarans koma til með að troða upp á háskóladeginum og ég lofa góðri stemningu,“ segir Margrét.
Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira