Glamour

Hettupeysur, há stígvél og breiðar axlir

Ritstjórn skrifar
Glamou/getty
Breiðar axlir, hettupeysur og há stígvél voru áberandi þegar franska merkið Vétements sýndi línu sína fyrir haust og vetur 2016. 

Á hettupeysunum mátti finna stórskemmtilegar setningar á borð við  „Are we having fun yet,“ „May the bridges I burn light the way,“ „Drink from me and live forever,“ og „you fuck'n asshole.“

Í bland við það mátti sjá klæðilega rykfrakka, víðar buxur, köflótta kjóla og dragtir sem myndu sóma sér vel í flestum fataskápum.

Nokkrar fyrirsæturnar voru með stóran járnhring í beltinu en í gegnum hann hafði verið þrædd kápa eða jakki, nokkuð þægileg leið til að geyma yfirhöfnina.

Þetta franska merki er tiltölulega ungt í tískuheiminum, en það var stofnað af sjö fatahönnuðum sem unnu saman hjá Maison Martin Margiela. Hugmyndin kviknaði í kaffipásunum hjá þeim og var markmiðið að gera flottan fatnað sem fólk vildi klæðast og myndi seljast.

Hönnuðirnir hafa ekki vilja láta nafns síns getið, en einn af þessum sjö stofnendum þess er Demna Gvasalia, sem tók við af Alexander Wang sem listrænn stjórnandi Balenciaga.

Ritstjórn

Tengdar fréttir






×