Matur beint frá býli í Hörpu Viktoría Hermannsdóttir skrifar 5. mars 2016 11:00 Þær Eirný og Hlédís héldu fyrsta matarmarkaðinn fyrir um fimm árum. Síðan þá hefur hann vaxið mikið og farið frá því að vera haldinn í litlu tjaldi yfir í að vera í Hörpunni. Fréttablaðið/Stefán
Það myndast svo mikil stemming á markaðnum og það er ekki síður það sem gerir þetta svona skemmtilegt,“ segir Hlédís Sveinsdóttir. Hún, ásamt Eirnýju Sigurðardóttur, stendur fyrir Matarmarkaði Búrsins sem haldinn er í Hörpu um helgina. Markaðurinn var haldinn fyrst fyrir fimm árum og hefur vaxið töluvert síðan þá. Fyrst var hann haldinn í litlu tjaldi fyrir utan sælkeraverslunina Búrið en verður núna haldinn í áttunda sinn í Hörpu. „Núna eru þetta um 50 framleiðendur sem taka þátt en þeir voru fimmtán fyrst. Þetta hefur stækkað hratt, þegar við fórum fyrst að tala um þetta þá fannst okkur vanta þessa matarmarkaðsstemningu á Íslandi. Við kýldum bara á þetta og héldum fyrsta markaðinn fimm dögum seinna. Okkur óraði ekki fyrir því þá að þetta myndi stækka svona fljótt,“ segir Hlédís. Á matarmarkaðnum gefst fólki kostur á að kaupa vöru beint af framleiðenda. Allar vörur sem seldar eru á markaðnum eru framleiddar hér á landi. Ýmislegt verður til sölu; kjöt, fiskur, brauð, konfekt, brjóstsykur og krydd, svo eitthvað sé nefnt. „Þorgrímur á Erpsstöðum er til dæmis að selja, hann býr sjálfur til ís sem hann selur í brauðformi á markaðnum. Ómar frá Hornafirði verður líka þarna en hann veiðir sjálfur, verkar, reykir og selur svo fiskinn,“ segir Hlédís en framleiðendum sem taka þátt hefur fjölgað mikið. „Það er mismunandi hvaða framleiðendur taka þátt hverju sinni og nú er fólk farið að mæta til að kaupa eitthvað sem það keypti á síðasta markaði.“ Hlédís segir aukna vitund vera um að kaupa beint frá býli, vörur sem þú veist hvaðan koma og hvað er í þeim. „Það er okkar að uppfræða næstu kynslóð. Það skiptir máli hvernig er farið með skepnuna. Það er margt í þessu sem við þurfum að huga að. Við viljum endilega hvetja fólk til að koma með börn á markaðinn. Leyfa þeim að upplifa, smakka og ræða við þau um uppruna og innihald matar. Við stoppum t.d. ekki matarsóun nema að kenna þeim að bera meiri virðingu fyrir matnum.“ Matarmarkaðurinn er opinn bæði laugardag og sunnudag frá 11-16 og aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Valin versti ljósmyndari heims Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira