Óvæntir afgangar vinsælir Birgir Örn Steinarsson skrifar 7. mars 2016 14:16 Nýja platan inniheldur lög sem hann vann að á sama tíma og á síðustu plötu To pimp a butterfly. Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Kendrick Lamar kom öllum að óvörum fyrir helgi þegar hann gaf án nokkurs fyrirvara út nýja plötu stafrænt. Platan ber nafnið Untitled Unmastered og inniheldur átta lög sem rapparinn hefur unnið að síðustu þrjú ár. Öll lög nema eitt voru tilbúin áður en hann gaf út breiðskífuna To pimp a butterfly sem Rolling Stone magazine valdi bestu plötu síðasta árs. Síðan á föstudag hefur platan fengið rúmlega 2 milljónir spilana á Spotify. Þrátt fyrir að vera einhvers konar afgangs-, mylsnu- eða viðbótarplata frá útgáfunni frá því í fyrra eru fyrstu viðbrögð gagnrýnanda þau að hér sé um nokkuð heildstæða plötu að ræða. Hún er töluvert styttri en breiðskífurnar tvær sem komu á undan en hljómur og frágangur á lögunum er aldrei á þann veg að hlustandinn fái það á tilfinninguna að hér sé verið að bjóða upp á einhverjar prufuupptökur. Það er þó þvert á þau skilaboð sem listamaðurinn póstaði sjálfur á twitter-síðu sinni þar sem hann sagði að lögin væru borin fram hrá og ókláruð. Allur frágangur í kringum umslag plötunnar minnir þónokkuð á þriðju breiðskífu Sigur Rósar sem eins og margir muna hét "( )" og er oftast kölluð „svigaplatan“ í daglegu tali. Eins og þar eru lögin tæknilega ónefnd. Á lagalista kemur fram orðið „ótitlað“ og svo dagsetning sem skilur hlustandann eftir með þá spurningu hvort þar sé átt við hvenær lagið var samið eða klárað? Sama djass-ský umleikur tónlist nýju plötunnar og þá síðustu og á henni er töluvert um gestagang. Þar má nefna Cee-Loo Green, Adrian Younge og Ali Shaheed úr Tribe called Quest. Upptökustjórinn Swizz Beatz, sem er giftur söngkonunni Aliciu Keys, heldur því fram að sonur þeirra hafi séð um forritun á einu laganna á plötunni sem er merkilegt fyrir þær sakir að hann er aðeins fimm ára.
Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Stefna á gullið með tíu tonn í farteskinu Matur „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“