Glamour

Sportlegur goth still hjá Louis Vuitton

Ritstjórn skrifar
Glamour/getty
Louis Vuitton byrjaði síðasta dag tískuvikunnar í París með látum.

Dökkar varir, vínyl efni í svörtu, rauðu og bláu, sportleg snið, berar axlir og jakkar sem teknir voru saman í mittið voru áberandi.

Litlar handtöskur með glitrandi kögri sáust í bland við klassísku Louis Vuitton töskurnar. Einna mesta athygli vöktu þó skórnir, uppreimuð boots, með grófum botni og háum þykkum hæl. Fullkomið til að pæjast í snjónum næsta vetur. 

Litapallettan á sýningunni, sviðið sem klætt var spegla kristöllum og bláa lýsingin gerðu sýninguna að flottri heild. 

Drauma skórnir fyrir haustið





×