Glamour

Þessi voru verst klædd á Brit Awards

Ritstjórn skrifar
Cheryl Fernandez-Versini hélt að 2004 væri komið aftur.
Cheryl Fernandez-Versini hélt að 2004 væri komið aftur. Glamour/getty
Það er mikið um að vera í London þessa dagana. Tískuvikan var að klárast og BAFTA nýbúin. Í kvöld fara svo Brit Awards fram á O2 Arena.

Rauði dregillinn var ansi skrautlegur og voru þvi miður ansi margar stjörnurnar sem stigu feilspor í þetta skiptið. 

Strákarnir stóðu sig þónokkuð betur í klæðavali, en voru stelpurnar ekki að skora mörg stig hjá ritstjórn Glamour.

Sadie Pinn og Pam Hogg mættu i þessu.
Við sem vorum að vona að „naked dress“ væri búið. Ó nei.
Söngkonan Birdy mætti í svona blágráum kyrtli.
Lana Del Rey steig að okkar mati feilspor í þessari gardínu.
Jess Glynne glysrokkaði yfir sig í grænni glimmerdragt og þykkbotna skóm.
Lee Francis ætlaði að púlla Pharrell. Það tókst ekki.
Geri Halliwell tók leopard print alla leið.
Britain´s Got Talent dómarinn Alesha Dixon sló svo botninn í þetta með þessu afleita dressi.





×