Tími til að sá kryddjurtum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 25. febrúar 2016 07:00 "Maður getur sáð öllum þessum jurtum beint í potta með venjulegri mold en hún þarf að vera ný og góð,“ segir Lára Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Blómavali. vísir/ernir
Tími fyrir forsáningu kryddjurta til að hafa í pottum inni er hafinn. Svo er hægt að sá aftur fyrir þeim sem eiga að fara út í garð. Noti maður mikið af kryddjurtum borgar sig að vera með sáningu á nokkrum stigum. „Það er orðið það bjart úti að plöntur geta dafnað í gluggum. Það er upplagt að sá fyrir basilíku núna. Hún er hitakær og hún þrífst bara inni. Kóríander sem sáð er núna myndi ekki farnast vel þegar því væri plantað út þar sem það sprettur úr sér inni. Það er hins vegar hægt að sá kóríanderfræjum núna til tína blöðin af jafnóðum af og neyta þeirra. Svo er hægt að sá aftur fyrir kóríander sem á að fara út. En það má líka sá kóríander beint út þegar tími er kominn til að sá út,“ segir Lára Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Blómavali. Hún segir að þar sem tímían og rósmarín auk graslauks og steinselju sé svolítið lengi að spíra sé ágætt að byrja að sá þessum kryddjurtum. Við sáningu þarf að gæta þess að vera með nýja, góða mold, gjarnan sáðmold. Lára tekur það fram að sáðmold sé þó ekki skilyrði við sáningu kryddjurta. „Maður getur sáð öllum þessum jurtum beint í potta með venjulegri mold en hún þarf að vera ný.“ Sett eru 20 til 30 fræ í hvern pott af stærðinni 10 til 15 cm, að því er garðyrkjufræðingurinn bendir á. „Reglan við sáningu er að þekja ekki fræin meira en sem nemur tvöfaldri til þrefaldri þykkt þeirra. Ef fræin eru ofsalega fíngerð klappar maður þeim bara ofan á moldina. Gæta þarf þess að moldin sé vel rök áður en fræin eru sett niður. Sé vökvað eftir á er hætta á að fræin skolist til. Gott er að breiða plast, sem hefur verið gatað, yfir pottana. Séu þeir í glugga sem sólin skín á ætti að breiða hvítt plast yfir til að fræin hitni ekki of mikið. Góður spíringarhiti er 22 til 24 gráður. Ef plast er haft yfir þarf að vökva sjaldnar í spírunarfasanum. Nóg er að fylgjast vel með því að jafn raki sé í moldinni, að sögn Láru. Verði stilkurinn á plöntunni þunnur og ræfilslegur er líklegt að of dimmt eða of heitt hafi verið á fræjunum. Jafnvægi þarf að vera á milli birtu og hita. Ekki þarf að gefa næringu fyrr en kominn er góður vöxtur í plöntuna. Meðan rótin er ung og viðkvæm er beðið með áburðargjöf.
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira